Upp með metnaðinn!
Það er kominn tími til þess að skilja að hjólandi lúta ekki sömu lögmálum og akandi eða gangandi í skipulagningu innviða fyrir hjólreiðar. Þarfir hjólandi eru einfaldlega aðrar en gangandi og akandi, ekki síst vegna annars ferðahraða. Við uppbyggingu hjólaleiðanets hefur víða verið lögð áhersla á að koma upp innviðum meðfram helstu umferðaræðum, t.d. eru í Kaupmannahöfn hjólabrautir meðfram öllum helstu götum.