- Details
- Páll Guðjónsson
Við vorum að setja inn fleiri myndir úr vel heppnaðri ferð klúbbsins á Nesjavelli. Þetta eru myndir sem Magnús Bergsson tók. Það er skemmtilegt að sjá hversu fjölbreyttan búnað fólk er farið að nota. Magnús sjálfur er á "recumbent" hjóli þar sem hann situr í þægilegu sæti bak við vindskel og nýtur þess hve mikið minni vindmótstaða erí svona fararskjóta miðað við venjuleg hjól. Einnig eru nokkrir í ferðinni með svokallaða Bob vagna í eftirdragi. Þeir eru frábær valkostur við bogglabera með töskum að því leitinu til að maður finnur varla fyrir þeim þegar hjólað er. Klúbburinn á einn slíkan sem við leigjum út. Skoðið myndir Magnúsar hér .
- Details
Fyrsta ferðalag klúbbsins í sumar heppnaðist vel. Samkvæmt hefðinni grilluðum við þegar á áfangastað var komið og þeir sem höfðu áhuga gátu svo fylgst með Eurovision um kvöldið í 50" plasmaská. Að sjálfsögðu var einnig slakað á í pottinum. Við hjóluðum svo saman til baka á sunnudeginum þegar allir voru búnir að kýla út kviðinn.
Skoðið myndir úr ferðinni sem Pétur tók
- Details
- Fjölnir Björgvinsson
Það voru um 20 hressir hjólakappar sem tóku saman hjóltúr um Elliðaárdal og Grafarvoginn í gær. Með í för var Ólafur Einarsson fuglafræðingur og sagði hann frá þeim fuglum sem við sáum. Merkilegt hvað augu manns opnast við að hafa fræðimann sér við hlið. Til dæmis á leið sem ég hef hjólað oft undanfarið, benti hann okkur á hrafn sem lá á hreiðri á nokkuð áberandi stað. Ekki grunaði mig að þarna væri hreiður, sérstaklega þar sem ég fer oft þarna um. Við stoppuðum oft til að líta í kringum okkur og spjalla. Frábær hringur. Fjölnir
- Details
Seinast liðinn laugardag fór ég við annan mann í dagsferð sem var svo að segja ákveðin samdægurs. Veðrið skartaði sínu fegursta eins og myndirnar sem hér fylgja með sína. Á leiðinni inn í Hafnarfjörð undir lok ferðarinnar var því miður orðið of skuggsýnt til myndatöku en þar fórum við um einstaklega skemmtilegan stíg sem liggur úr nýja hringtorgahverfinu yfir í Ása hverfið fram hjá Ástjörn. Mæli eindregið með þessum stíg fyrir þá sem eiga leið þarna um því hann var afbragðs skemmtun.
Ferðin reyndist vera rétt um það bil 60 km í heild og mjög vel heppnuð í alla staði. Þó vil ég bend fólki á að á hæsta punkti ferðarinnar var mjög hált og því nánast nauðsinlegt að vera á negldum dekkjum ef fara á þar um í kuldatíð. Að öðru leyti þarf lítið annað í svona ferð en bara góða skapið og eitthvað heitt að drekka til að hlýja sér aðeins á miðri leið. Ágætt neyðarskýli er á leiðinni sem vel þess virði er að stoppa í fá sér aðeins í gogginn og heitt með því.
- Details
Á vordögum fór klúbburinn í hina árlegu Nesjavallaferð. Ferðin var í þetta skiptið farin undir forystu Magnúsar Bergssonar og var þátttaka góð. Vart hefði tímasetningin getað verið betri því sömu helgi voru alþingiskosningar og eurovision. Það var því ljóst þegar lagt var í hann að líklega myndu skapast líflegar umræður í heitapottinum um kvöldið.
Góður andi var í hópnum og við fengum fínt veður eins og sjá má á myndunum. Ferðin gekk í alla staði vel og vonandi sjáum við alla þá sem komu með aftur á næsta ári og fleiri til.
Nú þegar skammdegið er skollið á er ekki úr vegi að rifja upp myndir frá liðnu sumri. Ég fór í einstaklega vel heppnaða helgarferð á Þingvelli um Gamla Þingvallaveginn og þaðan um Leggjarbrjót niður í Brynjudal.
Ég fékk frábært veður báða dagana eins og myndirnar bera með sér og þær hreinlega halda í mér lífinu fram til næsta sumars þessa dagana.
Fyrir þá sem vilja takast aðeins á við fáfarnari slóða og vegi er vel hægt að mæla með þessari leið. Hinsvegar mæli ég frekar með því að menn fari Leggjarbrjót alveg niður í botn þar sem það reyndist frekar erfitt að brjótast í gegnum kjarrið niður í Brynjudal.
- Details
- Páll Guðjónsson
2006 |
|
Hin kornunga Sóley Bjarnadóttir, tólf ára, var heiðruð þriðjudaginn 29. ágúst, fyrir bestu þátttöku í hjólreiðaferðum Íslenska fjallahjólaklúbbsins þriðja árið í röð. Sóley hefur því unnið sér farandbikarinn til eignar. Hjóluð var síðasta kvöldferð sumarsins frá Mjóddinni klukkan 20:00 og niður í Fjallahjólabúðina þar sem afhending og lítið hóf með veitingum í boði GÁP fer fram. Bikarinn er sem fyrr í boði Alhliða flutningsþjónustunnar ehf. Myndir |
|
Svipmyndir úr kvöldferðum sumarssins 2006 úr myndavél Bjarna, Sigríðar Helgu og Sóleyjar |
|
20-21. maí. Nesjavallaferð 2006 |
|
20-21. maí. Nesjavallaferð 2006 |
|
Hjólalestin 14. maí. Hjólað var frá Spönginni, Mjódd og Smáratorgi í Nauthólsvík þar sem hóparnir söfnuðust saman og hjóluðu síðan saman í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn |
|
Svipmyndir frá viðgerðarnámskeiði 4. maí fyrir byrjendur þar sem Magnús Bergs fór yfir grunnatriðin á gírum og bremsum . |
|
2005 |
|
Samgönguvikan 2005 sett 16/9/2005. Tilgangur vikunnar er m.a. að vekja almenning til vitundar um nauðsyn þess að minnka mengun af völdum umferðar og hvetja til breyttra og betri samgönguhátta. Til að marka upphaf þessa verkefnis afhenti Steinunn Valdís Óskarsdóttir, borgarstjóri, Óskari Dýrmundi Ólafssyni, framkvæmdastjóra Vesturgarðs Samgöngublómið í Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsi. Kór barna úr leikskólanum Tjarnarborg söng við afhendinguna. |
|
Tjarnarspretturinn 17/9/2005 |
|
Ofurhugar úr Team GÁP sýndu kúnstir sínar á reiðhjólum í Hljómskálagarðinum eftir Tjarnarsprettinn. Hér eru myndir sem Páll Guðjónsson tók og fleiri á vef HFR sem Albert Jakobsson tók hér. |
|
Svíinn Daniel Johansson hjólaði um landið 2003 með vini sínum og hér er vefurinn hans með ljósmyndum, vatnslitamyndum og ferðasögunni |
|
Svipmyndir úr kvöldferðum sumarssins 2005 og Nesjavallaferðinni í vor sem Sigríður Helga sendi okkur. |
|
Á sjómannadaginn 5. júní 2005 fór hjólalest frá eimreiðinni við Reykjavíkurhöfn áleiðis til Nauthólsvíkur. Tilefnið er afhending Bláfánans sem er alþjóðlegt merki sem hefur þann tilgang að stuðla að verndun umhverfis hafna og baðstranda. Landvernd óskaði eftir þátttöku hjólreiðafólks og vildi leggja áherslu á sjálfbærar samgöngur við afhendingu fánans. - Myndir: Magnús Bergs |
|
Lokaathöfn Hjólað í vinnuna í Fjölskyldu- og Húsdýragarðinum mánudaginn 23. maí kl. 12-13. Dagskráin hófst kl. 12 með verðlaunaafhendingu á stóra sviðinu í Fjölskyldugarðinum og í framhaldinu rölt yfir í veitingatjald Húsdýragarðsins þar sem boðið var upp á létta veitingar. Myndir: Magnús Bergs |
|
Fjölskylduferð á Nesjavelli: Helgarferð. Grill og letiferð með alla fjölskylduna spölkorn frá Reykjavík. Tilvalinn ferð til að athuga hjól, búnað og líkamlegt þol fyrir lengri ferðir sumarsins. |
|
|
Hjólað á Nesjavelli |
Hjólalestin fór um Reykjavíkurborg 5. maí. í tilefni af fyrirtækjakeppninni Hjólað í vinnuna. Lagt var af stað frá Spönginni, Mjódd og Smáratorgi kl.12 og hjólað sem leið lá í Nauthólsvík. Þaðan lagði síðan hin eiginlega Hjólalest af stað kl. 13. Hjólað var í lögreglufylgd um miðbæinn sem leið lá í |
|
2004 |
|
Óvenjugott hjólreiðasumar |
|
Endaslepp ferðasaga |
|
2004 |
|
17.-19. september. Ferð ÍFHK í Húsafell |
|
27. ágúst - 5.september. Skotlandsferð |
|
15. júní. Kvöldferð um Viðey |
|
22.-23. maí. Nesjavallaferð |
|
17.-28. maí. Ísland á iði - Hjólað til vinnu.
Hjólað til vinnu. Samkeppni milli fyrirtækja landsins um t.d. hvaða fyrirtæki hjólar flesta klómetra til og frá vinnu og hvaða fyrirtæki hafi á að skipa flestum hjólreiðamönnum ofl. Þetta var samvinnuverkefni hjólreiðafélaganna og ÍSÍ. um að hvetja til aukinna daglegra hjólreiða. |
|
|
Leiðin að kökuhlaðborðinu…. |
2003 | |
2. sept. |
Skoðið hér svipmyndir bikarafhendingu við lok þriðjudagskvöldferða. |
September |
Lesið hér og skoðið myndir úr hjólaferð Fjölnis Björvinssonar um Móseldalinn |
Sumar 2003 |
Línuvegurinn. Lesið hér ferðasögu Kidda ásamt myndum. |
Sumar 2003 |
Sóley 9 ára hjólar frá Landmannahelli til Landmannalauga Lesið hér |
20. maí |
Skoðið hér svipmyndir úr þriðjudagskvöldferð um Voga og Langnes. |
13. maí |
Skoðið hér svipmyndir úr þriðjudagskvöldferð um Geldinanes. |
2002 | |
13. ágúst |
Skoðið hér svipmyndir úr þriðjudagskvöldferð um Geldinanes. |
7. nóv. |
Skoðið hér svipmyndir af aðalfundi ÍFHK |
13. ágúst |
Skoðið hér svipmyndir úr þriðjudagskvöldferð um Geldinanes. |
2. júlí |
Skoðið hér svipmyndir úr þriðjudagskvöldferð til Hvaleyrarvatns. |
12-18 júní |
Skoðið hér svipmyndir úr Noregsferðinni |
4. júní |
Skoðið hér svipmyndir úr þriðjudagskvöldferð um Garðabæ. |
28. maí |
Skoðið hér svipmyndir úr þriðjudagskvöldferð um Lauganes. |
25. maí |
Skoðið hér svipmyndir úr fjölskylduferð til Nesjavalla |
21. maí |
Skoðið hér svipmyndir úr þriðjudagskvöldferð um Breiðholt. |
14. maí |
Skoðið hér svipmyndir úr þriðjudagskvöldferð um Grafarvog. |
11 maí |
Skoðið hér svipmyndir frá viðgerðarnámskeiði Magnúsar Bergs í klúbbhúsinu. |
8 maí |
Skoðið hér svipmyndir úr þriðjudagskvöldferð um Kópavog. |
2001 | |
20 maí |
Skoðið hér "Sveitafélögin hjóluð saman" með þáttöku borgarstjórans og fulltrúa úr sveitafélögunum á höfuðborgarsvæðinu. |
22. maí |
Skoðið hér svipmyndir úr þriðjudagskvöldferð um Laugarnesið. |
26-27 maí |
Fjölskylduferð til Úlfljótsvatns. Lesið um ferðina og skoðið myndir Haralds Tryggva úr henni hér, og frásögn Ara hér. |
29. maí |
Skoðið hér svipmyndir úr þriðjudagskvöldferð um Garðabæ. |
5. júní |
Skoðið hér svipmyndir úr þriðjudagskvöldferð um Grafarvog. |
12. júní |
Skoðið hér svipmyndir úr þriðjudagskvöldferð um Seltjarnarnes ( "slideshow"). |
31. júlí |
Skoðið hér svipmyndir úr þriðjudagskvöldferð um Viðey. |
7. ágúst |
Skoðið hér svipmyndir úr þriðjudagskvöldferð þegar hjólað var að Straumi. |
9. ágúst | |
14. ágúst |
Skoðið hér svipmyndir úr þriðjudagskvöldferð um Geldinganes ( "slideshow"). |
18. ágúst |
Reykjavíkurmaraþon. Eins og undanfarin ár hjálpuðu sjálfboðaliðar frá ÍFHK til við að greiða leið hlauparanna með því að fara fyrir. Jakob sendi okkur myndir sem eru hér. Skoðið líka myndir Magnúsar Bergs frá sama degi hér og Jóns Arnar hér og myndir frá síðustu keppni hér |
22. sept. |
Hér eru svipmyndir frá opnun hjóla- og göngustígsins í Mosfellsbæ. |
Alda Jóns hjólaði yfir Arnarvatnsheiðina sumarið 2001. Lesið ferðasöguna og skoðið myndirnar.
Fyrir utan það að hjóla um þjóðvegi Íslands er annar spennandi valkostur sem vert er að skoða og það er að hjóla um sérmerktar hjólaleiðir evrópu. Meira
Klúbburinn fór í skemmtilega ferð um vestfirði í júní 1999 eins og Jóhann Leósson segir frá hér.
Darren Swift kom hér og hjólaði um landið á handaflinu einu saman í hjólastólnum sínum sem var með einföldum hætti breytt í handknúið þríhjól. Lesið hér um útbúnaðinn hans og hér er umfjöllun hans um ferðina og ferðamátann.
Fyrsta ferðalagið er nokkuð sem margir mikla fyrir sér en stundum þarf maður bara að drífa sig af stað eins og Alda gerði þegar hún hjólaði til Þingvalla í útilegu í fyrsta skiptið, og það með alla fjölskylduna. Lesið pistilinn
Skagfirska 8an er hjólakeppni í frábæru umhverfi. Hún er ekki haldin af klúbbnum en það er óhætt að segja að félagsmenn ÍFHK og einnig HFR fjölmenntu í keppnina og var fólk almennt mjög ánægt með keppnina. Ekki voru allir að keppa að titli heldur bara að taka þátt í ferðinni og hafa gaman af. Skoðið svipmyndir úr Skagfirsku 8unni 7. og 8. ágúst 1999.
Í enda maí 1998 förum við létta helgarferð til Nesjavalla sem henta bæði fjölskyldufólki og nýliðum, enda hafa þarna margir farið sína fyrstu ferð hjólandi út úr bænum. Þeirra á meðal var Bára Bryndís Sigmarsdóttir og hér má lesa hennar sögu. Skoðið myndir Páls úr ferðinni eða lesið ferðasögu Öldu Jóns. Hér eru svipmyndir úr Nesjavallaferðinni 1999 sem Björgvin tók og frásögn Gísla Guðmundssonar.
Í enda veiðitímabilsins í Veiðivötnum, í enda ágúst, höfum við farið í létta helgarferð á hálendið í einstöku umhverfi Veiðivatna og Jökulheima sem alltof fáir hafa kynnst. Hér eru myndir úr fyrstu ferðinni 1997 sem Ólafur Rafnar Ólafsson tók og annað myndagallerí með myndum Jóns St. Kristjánssonar. Jón Örn skrifaði svo um viðburðaríka ferð okkar 1998. Hér eru svo svipmyndir úr Jökulheimaferðinni 1999, þar sem var farið upp að jöklinum.
Ein vinsælasta ferð klúbbsins var lengi vel Landmannalaugaferðin í byrjun september. Hér eru nokkrar myndir úr ferðinni 1995 sem Páll Guðjónsson tók, ferðasagan eins og Guðbjörg Halldórsdóttir upplifði ferðina og aftur eins og Gísli J. Guðmundsson upplifði hana. 1994 sem Guðrún Ólafsdóttir tók. Þessi ferð hefur reyndar verið í pásu síðustu sumur. Gísli hjólaði líka um vestfirði sumarið 1996, hér er stutt frásög frá þeirri ferð.
"Sumir eiga bíla og aka þeim, eins og þeim þóknast um landið. En við getum ekki öll átt bíla. Það er heldur ekki nauðsynlegt. …ég á skemmtilegri farkost en bílinn. Það er Skjóna mín. Skjóna mín er reiðhjól, og heitir eftir henni Skjónu litlu, sem ég eignaði mér, þegar ég var heima. Ég hef farið nær alla akvegi landsins á Skjónu minni, og aðalvegina oft." Svona skrifaði Oddný Guðmundsdóttir um ferðalög sín og viðrar skoðanir sínar í bland.
Marty Basch hjólaði umhverfis Ísland sumarið 1996 á leið sinni eftir heimskautabaugnum og hafði ferðatölvu með sem hann notaði til að fá sögu sína birta jafnóðum á internetinu.
Arnþór Helgason og Elín Árnadóttir hjóluðu frá Reykjavík á Austfirði en notuðu aðra tækni en flestir. Þau fóru nefnilega á tveggja manna hjóli og með hluta af farangrinum í Bob farangursvagni. Lesið ferðasöguna og skoðið myndir úr ferðinni.
Vorið 1997 hjóluðu þau um Skotland . Þar leigðu þau sér tveggja manna hjól, könnuðu hjólaleiðir í kringum Glasgow og tóku fjölda mynda. Lesið ferðasöguna og skoðið myndirnar.
Kalli og María hjóluðu saman austur á Austfirði og norður á Akureyri þar sem leiðir skildu en Kalli hélt áfram á Vestfirði og áfram. 20 myndir.
Jón Örn hefur verið fararstjóri í mörgum ferðum klúbbsins en líka í ferðum með erlendum túristum sem setjast á bögglaberana, segja "hott hott" og leggja svo kollhúfur þegar ekkert gerist.
Feðgarnir Konni og Elli eru einnig með skemmtilegar heimasíður sem vert er að heimsæka, með myndum úr ferðum og ýmsum fróðleik
Sverrir Kiernan og félagar fóru hjólandi yfir sprengisand í júlí 2004. Skoðið vefinn
- Details
- Arnþór Helgason
- Details
- Sóley Bjarnadóttir
- Details
- Fjölnir Björgvinsson
Þessi viðburður heppnaðist með eindæmum vel. Mjög áhugaverð myndasýning og vel skreytt með feröasögunni. Það mættu um 25 manns í heildina en frá Hjólaklúbb Lýðveldisins komu 4.