- Details
- Ben Searle
Árið 1933 fór Horace Edward Stafford Dall fyrstur allra yfir auðnir Sprengisands á farartæki með hjólum. Farartækið var Raleigh þriggja gíra reiðhjól með lokaðri keðjuhlíf. Það var mánuði seinna sem fyrst var farið yfir sprengisand á mótordrifnu farartæki. Ben Searle segir söguna.
- Details
- Páll Guðjónsson
Íslenski fjallahjólaklúbburinn (ÍFHK) var stofnaður í þjóðgarðinum í Skaftafelli
5. júlí 1989 og er því orðinn 20 ára. Það hefur margt breyst frá upphafsárum klúbbsins, t.d. öll tækni og þekking tengd reiðhjólunum og jákvæð viðhorf til þeirra sem hjóla. Hvað varðar náttúruna þá hefur mikið breyst á stórum svæðum, vegna virkjana m.a. Ekki eru allir heldur á því að auðveldara aðgengi að hálendinu sé til bóta. Í tilefni dagsins eru hér nokkrar myndir af þeim félögum Magnúsi Bergssyni og Gísla Haraldssyni í ferðinni sem gat af sér klúbbinn okkar.
- Details
- Hildur Eiríksdóttir
ÍFHK skipulagði ferð frá Kaupmannahöfn til Berlínar sumarið 2008. Þessi
leið var merkt árið 2000 þegar þessar borgir voru menningarborgir
Evrópu. Skipuleggjendur voru Sesselja Traustadóttir og Kjartan Guðnason
og voru þau einnig fararstjórar í ferðinni. Þegar Sesselja
samstarfskona mín talaði um ferðina í vinnunni stóðst ég ekki mátið,
gekk í klúbbinn og skráði mig í ferðina. Ekki var ég alveg viss um að
ég gæti þetta í hópi íslenskra fjallahjólagarpa sem eiga flóknari
hjólaferilskrá en ég. Ég lét mig samt hafa það – ég kæmi þá bara
síðust í næturstað og þættist hafa tafist við að skoða umhverfið á
leiðinni.
- Details
- Margrét Friðriksdóttur
Þessi pistill fjallar um hjólreiðar. Þeir sem eru nú þegar búnir að
átta sig á gagni þessa fararmáta þurfa ekki að lesa lengra. Þið hin sem
rákuð augun í þennan pistil og hafið ekki enn uppgötvað það – lesið
áfram...
Mín hjólasaga nær ekki langt aftur, tja... svona u.þ.b. átta ár aftur í tímann. Hún hófst þegar góður vinur bauð okkur hjónum í hjólatúr ásamt fleirum ... svona helgarferð. Ætlunin var að fara hringinn umhverfis Skorradalsvatn.
- Details
- Páll Guðjónsson
Það var mikil hjólahátíð á Samgönguvikunni þann 20. sept. Íslenski fjallahjólaklúbburinn, Landssamtök hjólreiðamanna og fleiri aðstoðuðu við hjólalestir sem löguð af stað víðsvegar um höfuðborgarsvæðið og mættust síðan allar í Nauthólsvík. Þaðan var síðan hjólað í stórri hjólalest að Ráðhúsinu þar sem við tók fjölbreytt dagskrá sem Hjólareiðafélag Reykjavíkur átti stóran þátt í. Á vef þeirra hfr.is má lesa meira um keppnirnar og skoða fjölda mynda frá viðburðunum en hér eru myndir sem Páll Guðjónsson tók við Tjörnina. Á síðustu myndinni er verið að afhenda nýtt stígakort Reykjavíkur sem minnir meðal annars á það mikilvæga atriði að reglulegar hjólreiðar lengja lífið !
- Details
- Ferðanefndin
Farinn var hringur um Elliðavatn í þriðjudagskvöldferðinni í gær. Um daginn var veðrið ekki með besta móti, en eins og svo oft áður lygndi með kvöldinu og stytti upp. Við fengum meira að segja kvöldsól. Mikið fuglalíf er á svæðinu og sáum við meðal annars; himbrima og svana parið með ungana sem hefur verið umtalað í fréttum undanfarið. Ungarnir voru reyndar ekki nema 3 en feitir og pattaralegir.
Við vorum góður hópur sem áttum mjög góða stund við Heiðmörkina í gærkvöldi. Stopp var gert á mörgum stöðum til að njóta kyrrðarinnar, svo dagskráin teygðist aðeins. Lauk því ferðinni ekki fyrr en rétt rúmlega 10.
Ferðanefndin.
- Details
- Páll Guðjónsson
- Details
- Fjölnir Björgvinsson
Um 30 manns fóru Mosfellshringinn í gær. Mjög gott veður og kvöldsólin skartaði sínu fegursta. Kollur með ungana sína syntu með ströndinni rétt við stíginn. Nokkrir hestamenn viðruðu fáka sína og golfvellirnir sem við fórum framhjá voru vel nýttir enda veðrið til þess. Sökum veðurblíðu (og minniháttar bilana) dróst ferðin fram eftir kvöldi eða til um 22:30. Nokkrir garpar skáru sig úr hópnum í Mosfellsbæ og héldu áfram inn fyrir Úlfarsfellið og uppá Nesjavallaleið. Við hin fórum sömu leið til baka með fram sjónum.
Fjölnir
- Details
- Páll Guðjónsson
- Details
- Fjölnir Björgvinsson
Fyrstu myndir úr Berlínarferðinni. Við erum í Kansholte á eyjunni Møn. Tveir dagar búnir og gengur allt áfallalaust fyrir sig. Hópurinn er frekar breiður en þéttist við gatnamót og í bæjum. Höfum verið mjög heppin með gistingar og aðstaða okkar til fyrirmyndar. Gistum í Ishøj fyrstu nóttina/næturnar og þaðan eru fyrstu sex myndirnar. Klæðnaðurinn er ekki af því að það sé svo kalt heldur til að skýla okkur fyrir sólinni þar sem nokkur okkar voru byrjuð að sólbrenna þrátt fyrir sólarvörn í talsverðu magni.
Vona að við komumst í svona gott netsamband aftur ti að senda fleiri myndir. Hjólakveðjur úr Danmörku.
Fjölnir Björgvinsson