
- Details
- Ómar Smári Kristinsson
Ég á fleiri en eitt áhugamál. Dag einn er ég gekk inn í þýska myndasagnabúð blasti við mér bók sem sameinaði tvö þeirra: Teiknimyndasögur og hjólreiðar. Þetta var LukkuLákabók eftir þýskan höfund og teiknara – hliðarafurð af hinni einu og sönnu LukkuLákaseríu. Þetta var vel gerð bók með góðum söguþræði og myndum. Líkt og í „alvöru“ bókunum var tekið fyrir ákveðið þema í sögu Norður Ameríku. Hér var það frumtýpan af keðjuhjólinu sem hetjan þurfti að komast á í gegnum hættur vestursins til vesturstrandarinnar. Þar hlaut það hylli almennings en Léttfeti, reiðhestur LukkuLáka, var ekki eins hrifinn.

- Details
- Haukur Eggertsson
Í lok júlí sköpuðust aðstæður fyrir mig að fara í nokkuð langa hjólaferð. Ég hef lítil hjólað á hálendinu norður af Vatnajökli og þar sem langvarandi austanátt var í spilinum, beindi ég sjónum mínum að upphafsstað á Austurlandi. Ég fékk far til Akureyrar á föstudagskveldi, gisti hjá Ingvari frænda mínum og ætlaði að hefja leiðangurinn á laugardagsmorgni með því að taka strætó til Egilsstaða upp á Möðrudalsöræfi.

- Details
- Árni Davíðsson, formaður Landssamtaka hjólreiðamanna
Landssamtök hjólreiðamanna (LHM)[1] eru hagsmunasamtök sem hafa að markmiði að efla hjólreiðar á Íslandi sem heilsusamlegan lífsmáta og sem samgöngumáta. Þau eru ekki rekin i hagnaðarskyni. Helstu hjólreiðafélög landsins eiga aðild að LHM. Samtökin eru þó ekki aðeins málsvari félagsmanna hinna ýmsu hjólreiðafélaga heldur eru þau jafnframt málsvari allra sem hjóla á Íslandi. LHM er aðildarfélag að European Cyclists’ Federation, sem eru heildarsamtök fyrir hjólreiðafélög til samgangna og ferðalaga í Evrópu. LHM hlaut samgönguviðurkenningu Reykjavíkurborgar 2012 fyrir virka þátttöku og áhrif í að efla hjólreiðar á Íslandi.

- Details
- Páll Guðjónsson
Samhliða fjölgun hjólreiðafólks undanfarinna ára hefur þörfin fyrir sátt og samlyndi ólíkra hópa í umferðinni aldrei verið brýnni. Hugmyndin að sáttmála hjólreiðafólks og atvinnubílstjóra kviknaði kjölfar kynningar Maríu Agnar Guðmundsdóttur hjólreiðakonu og Svavars Svavarssonar ökukennara um gagnkvæman skilning á ráðstefnu Hjólafærni og LHM, Hjólað til framtíðar, sem haldin var á Seltjarnarnesi í september 2018.

- Details
- Andreas Macrander
Rigning, rigning, rigning... Eiginlega vildum við í fjölskyldunni njóta sumarsins úti á hjóli og í tjaldi. En í fyrra voru sunnanáttir ríkjandi og oftast var grátt og blautt í Reykjavík. En sem betur fer er alltaf einhver landshluti á Íslandi þar sem sólin skín og þegar veðurspáin var skoðuð varð ljóst að ferðin lægi á Norðurland.

- Details
- Ómar Smári Kristinsson
Mér finnst gaman að ferðast. Mér finnst gaman að sjá hvernig sjónarhornin breytast eftir því hvernig ég færist til. Hvað birtist á bak við næsta fjall, hvert rennur þessi lækur, hvernig tengjast þessir ásar og hálsar? Gluggasæti í lest (ef það er ekki of mikið af trjám) eða í flugvél (ef það er ekki of mikið af einsleitum skýjum) eru mínir staðir. Ég skil ekki hina týpuna; fólkið sem dregur fyrir gluggann eða skoðar eitthvað á blaðsíðum eða skjám, meðan stórbrotið eða spennandi útsýni líður hjá. Þá hugsa ég með mér: Veslings fólkið, ætli því finnist nokkuð gaman að hjóla? Fólk er svo lengi að koma sér frá einum áfangastað til hins næsta þegar hjólað er. Það er erfitt og hættulegt að lesa blöð og skoða snjallsíma meðan hjólað er. Auðvitað er líka fullt af spennandi efni á blaðsíðum og snjallsímum – heilu heimarnir. Og maður er fljótur að hendast heimanna á milli á blaðsíðum og skjám. Og maður er fljótur að ferðast heimshorna á milli í flugvél.

- Details
- Árni Davíðsson
Malmö er sem kunnugt er í Suður-Svíþjóð í héraðinu Skáni. Borgin hefur lengi verið fræg fyrir mikla hlutdeild hjólreiða í umferð borgarinnar. Kannski hefur nálægðin við Kaupmannahöfn handan Eyrarsundsins þar eitthvað að segja en sennilega hafa sögulegar ástæður líka einhver áhrif en borgin er gömul iðnaðarborg og reiðhjólið var gjarnan samgöngumáti verkafólks á 20 öld. Borgaryfirvöld Malmö virðast í gegnum tíðina hafa haft meiri skilning á hjólreiðum en í flestum öðrum borgum.

- Details
- Páll Guðjónsson
Ýmislegt gott í frumvarpinu
Unnið hefur verið að endurskoðun umferðarlaga undanfarinn áratug og er endurskoðað frumvarp til umferðarlaga nú fyrir Alþingi og í afgreiðslu hjá Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis. Undirritaður hefur ásamt fleirum í laganefnd Landssamtaka hjólreiðamanna allan þennan áratug sent inn athugasemdir og ábendingar. Fulltrúar hjólreiðamanna fengu hinsvegar ekki að koma að borðinu þegar upphafleg endurskoðun fór fram.

- Details
- Hrönn Harðardóttir
Hvað ungur nemur, gamall temur. Ég fann Fjallahjólaklúbbinn fyrir tæpum áratug. Ég hef farið óteljandi ferðir með klúbbnum, kynnst urmul af skemmtilegu fólki og átt ófáar gleði- og gæðastundir með hjólafólki á öllum aldri. Þegar ég var beðin um að koma inn í ferðanefnd, þá taldi ég að ég hefði ekkert þangað að gera, ég þekki ekkert af hjólaleiðum eða gististöðum. En smám saman lærir maður af öðrum og nú hef ég skipulagt fjölmargar hjólaferðir fyrir Fjallahjólaklúbbinn.

- Details
- Árni Davíðsson, formaður Landssamtaka hjólreiðamanna
Stígakerfið á höfuðborgarsvæðinu er orðið þétt og samanhangandi. Nú er hægt að komast frá Mosfellsbæ í norðri að Hafnarfirði í suðri og frá Seltjarnarnesi í vestri að Norðlingaholti í austri eingöngu á stígum. Samanhangandi stígakerfi sem gerir hjólandi og gangandi vegfarendum kleift að komast milli staða án þess að deila stofnbrautum með hraðri umferð bíla hefur verið eitt helsta hagsmunamál Landssamtaka hjólreiðamanna frá upphafi.

- Details
- Árni Davíðsson, formaður Landssamtaka hjólreiðamanna
Hefur þú upplifað að bíða eftir grænu ljósi í heila eilífð þegar þú hjólar á götunni og kemur að umferðarljósum?
Í samstarfi við Reykjavíkurborg og sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu hafa Landssamtök hjólreiðamanna og Hjólafærni verið með verkefni þar sem hægt er að koma með ábendingar um umferðarljós fyrir hjólandi og gangandi vegfarendur.

- Details
- Hrönn Harðardóttir
Það spáði ekki góðu helgina sem planið var að hjóla á Vestfjörðum. En við fengum þó einn góðan dag. Mjóifjörður tók á móti okkur í sparifötunum, það var logn og prýðis hiti. Eitthvað var um útidúra, skroppið upp að Eyrarfjalli og skoðuð falleg laut þar sem brekkan byrjar. Svo kílómetrafjöldinn var 37 eftir ánægjulegan hjóladag.
Fleiri greinar...
- Eurovision helgarferð að Úlfljótsvatni 2018
- Allir hagnast á auknum hjólreiðum
- Á ég að skella mér í ferð með Fjallahjólaklúbbnum?
- Borgarörin: Frábært fjölskylduhjól
- Hjólað í New York
- Um söfnunaráráttu og landakort
- Þakgil
- Kaupamannahöfn – Berlín 2017
- Stokkhólmur – Kaupmannahöfn 2017
- Börn og hjólavagnar
Kveðskapur
Hér er safn af kveðskap um hjólið sem hefur birst í fréttabréfum klúbbsins í gegnum tíðina.