Fjallahjólaklúbburinn Fjallahjólaklúbburinn
  • Forsíða
  • Fréttir
  • Pistlar
    • Pistlar
    • Ferðasögur og myndir
    • Hjólaleiðir
    • Útbúnaður
    • Saga reiðhjólsins á Íslandi
      • I. Inngangur
      • II. Alþjóðlegt baksvið
      • III. Reiðhjólið á Íslandi
      • IV. Samtök hjólreiðamanna
      • V. Reiðhjólið í umferðinni
      • VI. Verslun, viðgerðir og smíði
      • VII. Hjólakeppni
      • VIII. Ferðalög
      • IX. Lokaorð
      • Gamlar ljósmyndir
    • Kveðskapur
  • Dagskrá
    • Höfuðstöðvarnar Sævarhöfða 31
    • Hjólað um höfuðborgarsvæðið
    • Ferðalög ÍFHK
    • Viðburðir annarra
  • Hjólhesturinn
  • Klúbburinn
    • Um okkur
    • Gangið í klúbbinn
    • Umræðan
      • Facebook síða ÍFHK
      • Facebook grúppan
    • Afslættir til félagsmanna
    • Stjórn ÍFHK og nefndir
    • Saga ÍFHK
    • Samþykktir ÍFHK
  • English
Fjallahjólaklúbburinn Fjallahjólaklúbburinn
  • Forsíða
  • Fréttir
  • Pistlar
    • Pistlar
    • Ferðasögur og myndir
    • Hjólaleiðir
    • Útbúnaður
    • Saga reiðhjólsins á Íslandi
      • I. Inngangur
      • II. Alþjóðlegt baksvið
      • III. Reiðhjólið á Íslandi
      • IV. Samtök hjólreiðamanna
      • V. Reiðhjólið í umferðinni
      • VI. Verslun, viðgerðir og smíði
      • VII. Hjólakeppni
      • VIII. Ferðalög
      • IX. Lokaorð
      • Gamlar ljósmyndir
    • Kveðskapur
  • Dagskrá
    • Höfuðstöðvarnar Sævarhöfða 31
    • Hjólað um höfuðborgarsvæðið
    • Ferðalög ÍFHK
    • Viðburðir annarra
  • Hjólhesturinn
  • Klúbburinn
    • Um okkur
    • Gangið í klúbbinn
    • Umræðan
      • Facebook síða ÍFHK
      • Facebook grúppan
    • Afslættir til félagsmanna
    • Stjórn ÍFHK og nefndir
    • Saga ÍFHK
    • Samþykktir ÍFHK
  • English
Details
Sesselja Traustadóttir, Hjólafærni á Íslandi
Sesselja Traustadóttir, Hjólafærni á Íslandi
18. apríl 2022

Hjólavottun vinnustaða, mjúk aðgerð fyrir bjartari framtíð

Góð hjólastæði fyrir gesti, gott aðgengi fyrir starfsmenn, viðgerðaraðstaða, samgöngusamningar og stefnumótun eru á meðal þess sem gefur stig í Hjólavottun vinnustaða; vottun sem varð til upp úr samfélagsverkefninu Hjólum.is þar sem grasrót, stofnanir og fyrirtæki fóru samhent í aðgerðir til að efla hjólreiðamenningu á Íslandi árið 2015.

Meira …

Details
Hrönn Harðardóttir
Hrönn Harðardóttir
18. apríl 2022

Úthlíð - ferðamennska að vetri

Þessi pistill er um ferðamennsku að vetrarlagi.  Eða þegar allt sem getur farið úrskeiðis fer úrskeiðis.

Við ákváðum að skella okkur í bústað í Úthlíð eina fallega helgi í janúar.  Þar eð bústaðurinn var pantaður í október, var engin leið að vita hvort við gætum eitthvað hjólað þessa helgi.  En þá má fara í stuttar gönguferðir og dóla sér í heita pottinum.  Elda saman, spila á spil, syngja og spila á gítar.  Vegir eru alltaf ruddir og því hægt að skipuleggja hringleið við hæfi.  Eða hjóla 10-20 km í eina átt og svo sömu leið til baka.

Meira …

Details
Hrönn Harðardóttir
Hrönn Harðardóttir
17. apríl 2022

Selfoss - Hellisskógur - dagsferð 20. nóv. 2021

Dagsferð Fjallahjólaklúbbsins 20. nóvember 2021. Hellisskógur er leynd perla hinu megin við brúna á Selfoss.  Þangað hjóluðum við, kíktum á hellinn sem er í miðjum skóginum, aftur til baka og skoðuðum einstaklega vel heppnaðan miðbæ Selfoss.  Fengum okkur að borða, skruppum í sund og svo var haldið heim á leið.

Meira …

Details
Hrönn Harðardóttir
Hrönn Harðardóttir
17. apríl 2022

2021 - Höskuldarvellir - Spákonuvatn - Sogin

Dagsferð Fjallahjólaklúbbsins 3, október 2021. Einhver skjálftavirkni gerði vart við sig á Höskuldarvöllum, líkur jukust á eldgosi þar og því ákváðum við að fara og skoða svæðið áður en það hyrfi undir hraun.  Akvegurinn er skelfilegur, einungis fær jepplingum og þaðan öflugri bílum og því hjóluðum við frá Keflavíkurvegi.  Þetta svæði mætti gera aðgengilegra fyrir almenning, hvílík náttúrufegurð steinsnar frá byggð.

Meira …

Details
Árni Davíðsson, formaður Landssamtaka hjólreiðamanna
Árni Davíðsson, formaður Landssamtaka hjólreiðamanna
17. apríl 2022

Bréf til ríkisstjórna á COP26

Opið bréf til ríkisstjórna á COP26 nóvember 2021frá ECF, Evrópusamtökum hjólreiðamanna sem Landssamtök hjólreiðamanna er aðili að, og Fjallahjólaklúbburinn ásamt flestum samtökum hjólreiðafólks á Íslandi eru aðilar að LHM.

Meira …

Details
Hrönn Harðardóttir
Hrönn Harðardóttir
17. apríl 2022

Engidalur - dagsferð 2. ágúst 2021

Engidalur.  Dagsferð Fjallahjólaklúbbsins 2. ágúst 2021. Örn, reynslubolti í okkar röðum hefur oft hjólað og gengið inn í Engidal.  Lögðum bílunum við Hellisvirkjun og hjóluðum þaðan inn í Engidal.  Leiðin er ekki löng en torfær á köflum.  En ákaflega fallegt í bakgarði höfuðborgarinnar.

Meira …

Details
Hrönn Harðardóttir
Hrönn Harðardóttir
17. apríl 2022

Eldgos

Um miðjan mars var ég full af samúð.  Til Grindvíkinga, sem hristust með reglulegu millibili.  Hlutir féllu úr hillum og fólki varð ekki svefnsamt.  Ég, búandi í Reykjavík hristist líka og þótti mér stundum nóg um.  Því skipulagði ég hjólaleið um Þingholtið.  Nornareið, sem myndi vekja drekann á holtinu svo hann gæti barist við óvættinn á Reykjanesi.  Þetta svínvirkaði, um það leiti sem hjólaleiðin rann úr prentaranum, hætti skjálftavirknin og eldgos hófst í Geldingadölum við Fagradalsfjall.

Meira …

Details
Hrönn Harðardóttir
Hrönn Harðardóttir
17. apríl 2022

21 brúa sýn - dagsferð 26. júní 2021

Dagsferð Fjallahjólaklúbbsins 26. júní 2021. Árni hjólafærnimeistari skipulagði 70 km hring, þar sem hjólað var yfir allar helstu göngu- og hjólabrýr á höfuðborgarsvæðinu, 21 talsins.

Meira …

Details
Vefstjóri
Vefstjóri
17. apríl 2022

Öflugt gefandi starf sjálfboðaliða

Innihald þessa Hjólhests endurspeglar þá öflugu starfsemi sem unnin er bæði innan Fjallahjólaklúbbsins og Landssamtaka hjólreiðamanna sem ÍFHK er aðili að og annarra aðildarfélaga LHM eins og Hjólafærni á Íslandi. Undir hatti LHM eru líka félög með öfluga starfsemi í hjólasportinu.

Meira …

Details
Hrönn Harðardóttir
Hrönn Harðardóttir
17. apríl 2022

Eldgosið í Geldingadal, dagsferð 24 maí 2021

Fyrir neðan eru myndir úr dagsferð Fjallahjólaklúbbsins að eldgosinu í Geldingadal 24 maí 2021.

Meira …

Details
Hrönn Harðardóttir
Hrönn Harðardóttir
03. apríl 2021

Eldgos í Geldingadölum við Fagradalsfjall

Fjallahjólaklúbburinn á grind fyrir bíl sem tekur 4 reiðhjól.  Hún kom í góðar þarfir þegar við ákváðum að bjóða upp á dagsferð að gosinu.  Þegar ferðin var skipulögð, var Suðurstrandarvegur lokaður og planið var að hjóla frá Grindavík, upp og niður Ísólfsskálabrekku og fara svo malarslóða inn að Nátthaga og ganga þaðan upp að  Geldingadölum.  En þá var Suðurstrandavegur opnaður og við það styttist hjólaleiðin all verulega.  Til að við fengjum eitthvað hjólerí út úr deginum, þá kannaði ég slóða í nágrenninu og sá að við gætum hæglega hjólað 8 km.  Gönguleiðin var um 4 km, svo úr þessu varð 6 tíma dagsferð.  8 ef við tökum með ökuferðirnar og hamborgaraát að loknu góðu dagsverki.

Meira …

Details
Hrönn Harðardóttir
Hrönn Harðardóttir
03. apríl 2021

Þriðjudagskvöldferðir Fjallahjólaklúbbsins

Sumarið 2020 var svolítið öðruvísi.  Í miðjum heimsfaraldri héldum við okkar striki með þriðjudagskvöldferðirnar.  Enda dásamlegt að hjóla um höfuðborgina og nágrennið.  Við ákváðum að breyta um brottfararstað og fara frá Mjódd í stað Fjölskyldu- og húsdýragarðsins.  Við rákumst á gamalt plan og ákváðum að fylgja því að mestu.  Þess vegna var farið oftar í Heiðmörk og úthverfi en áður. 

Meira …

Details
Haukur Eggertsson
Haukur Eggertsson
02. apríl 2021

Hjólað um Þingeyjarsýslu með einn 4 ára

Við feðgar (4 og 45 ára) áttum, þegar landið var kóflaust, laugardaginn 13. júní 2020, erindi í fermingarveizlu norður í Húnavatnssýslur. Þar sem hálendið hafði ekki opnað og veðurspár voru samdóma um að veður yrði skást á landinu norðaustanverðu, ákváðum við að nýta ferðina og taka með okkur reiðhjól og vagn. Fengum við far með systur minni til veizlu en far frá veizlu til Akureyrar með móðurbróður mínum, sem einnig sótti ferminguna; gistum hjá honum aðfaranótt sunnudags.

Meira …

Details
Grétar William Guðbergsson
Grétar William Guðbergsson
02. apríl 2021

Hjólað um Kjöl

Kjölur, 28. – 30. júlí 2020
Við Guðrún Hreinsdóttir vorum búin að tala um að hjóla Kjöl við tækifæri. Þ.e.a.s. ef góð veðurspá væri framundan og við í fríi. Mig minnir að hugmyndin hafi komið eftir að ég keyrði Kjöl á leiðinni heim eftir hálendisferðina 2019. Svo laugardaginn 25. júlí, að mig minnir, hringdi hún í mig og sagði að það væri góð spá framundan og hvort ég væri ekki til í að fara. Ég hélt það nú. Ég hafði svo samband við Kolbrúnu Sigmundsdóttir og Jón Torfason til að athuga stöðuna á þeim. Þau voru á leið í bæinn, að vestan og voru að sjálfsögðu til í að koma með. Brottfarardagur var ákveðinn 28. júlí og við ætluðum að hjóla suður sem er þægilegri leið þó að hækkunin sé aðeins meiri.

Meira …

Details
Tyler Wacker
Tyler Wacker
02. apríl 2021

Hjólað frá San Fransico til Ísafjarðar

Aðeins ein vika leið frá því ég kláraði 11.000 kílómetra ferð þvert yfir Bandaríkin og þar til ég var staddur á Keflavíkurflugvelli að setja saman nýtt hjól og að hefja aðra ferð. Nokkrum mánuðum áður, í lok mars 2020, hafði ég gert hlé á stóru hjólaferðinni minni um Bandaríkin til að leita skjóls fyrir heimsfaraldrinum heima hjá foreldrum mínum í Texas. Nú finnst manni þetta hafa gerst fyrir löngu síðan.

Meira …

Details
Ómar Smári Kristinsson
Ómar Smári Kristinsson
02. apríl 2021

Fjallahjólaæðið í Skutulsfirði

Þetta gerðist einsog sprenging. Allt í einu er Ísafjörður einn heitasti staður landsins fyrir fólk sem rennir sér niður fjöll á reiðhjólum. Hvernig stendur á því? Það þarf aðallega tvennt til. Annars vegar er það rétta landslagið. Það er til staðar í fjalllendinu uppaf Skutulsfirði, þar sem höfuðstaður Vestfjarða er. Þar er allskonar halli á brekkunum og vegir og slóðar liggja uppá heiðar. Hins vegar þarf rétta fólkið til að koma auga á möguleikana í landslaginu og gera eitthvað í málunum. Þetta fólk er líka til. Það þurfti samt eitthvað til að koma skriðunni af stað. Það eru mörg ár síðan einhver gaur byrjaði að mynda braut neðst í Hnífunum og kom sér þar upp nokkrum stökkpöllum. 

Meira …

Details
Unnar Reynisson
Unnar Reynisson
02. apríl 2021

Sjáumst í Tweed Ride

Vorið 2014 keypti ég mér nýtt reiðhjól og hafði þá ekki átt hjól í rúman áratug. Hjólið sem varð fyrir valinu var frá ástralska reiðhjólaframleiðandanum Reid sem gerir reiðhjól í klassískum götuhjólastíl. Nokkru síðar spurði konan mín mig hvort ég hefði ekki áhuga á Tweed Ride. „Tweed Ride?“ spurði ég „Hvað er það?“ Hún sagði mér það og ég varð mjög spenntur, fannst þetta virkilega áhugavert og langaði að prófa. Var Tweed Ride þá á dagskrá strax helgina eftir. Ég var því miður upptekinn í vinnu þessa helgi og gat ekki tekið þátt.

Meira …

Details
Árni Davíðsson, formaður Landssamtaka hjólreiðamanna
Árni Davíðsson, formaður Landssamtaka hjólreiðamanna
02. apríl 2021

Vindur er val

Vindur er oft nefnd sem ástæða þess að fólk hjólar ekki meira en það gerir. Að sönnu getur stundum verið vindasamt á Íslandi og það getur verið sviptivindasamt á sumum þjóðvegum í grennd við fjöll. En er vindur eins mikil hindrun fyrir hólreiðar og menn ímynda sér? Hvað geta veðurmælingar sagt okkur um vind á Íslandi og hvernig er hann í samanburði við hjólaborgina Kaupmannahöfn?

Meira …

Details
Vefstjóri
Vefstjóri
07. July 2020

Þriðjudagskvöldferðir ÍFHK 2020

Þriðjudagskvöldferðirnar hafa farið vel af stað þetta sumarið.  Ríflega 30 manns hafa mætt í ferðirnar, en við höfum hjólað Vestur í bæ, upp í Grafarholt, kring um Kópavog, upp í Heiðmörk og kíkt á kaffihús í Nauthólsvík.
Er ekki kominn tími á að rífa sig upp úr sófanum og koma með okkur eina kvöldstund?

Meira …

Details
Árni Davíðsson og Hrönn Harðardóttir
Árni Davíðsson og Hrönn Harðardóttir
27. maí 2020

Að skipta um sveifarlegu - myndband

Hér sýnir Árni Davíðsson okkur hvernig á að skipta um sveifarlegu. Verkfærin sem þarf að nota eru sérhæfð og þau er að finna á verkstæði Fjallahjólaklúbbsins sem er opið öllum félagsmönnum. Upptaka og klipping Hrönn Harðardóttir.

Meira …

Fleiri greinar...

  1. Stellið stillt - myndband
  2. Hjólið yfirfarið - myndband
  3. Skipt um bremsupúða - myndband
  4. Skipt um dekk og gert við slöngu - myndband
  5. Reiðhjólið í teiknimyndasögum
  6. Þriðjudagskvöldferðir Fjallahjólaklúbbsins - svipmyndir
  7. Suður Sanda
  8. 30 ára afmælishátíð Fjallahjólaklúbbsins
  9. Hjólað um Móseldalinn
  10. Árangur Landssamtaka hjólreiðamanna

Pistlar

Útbúnaður

Ferðasögur og myndir

Kveðskapur

Hér er safn af kveðskap um hjólið sem hefur birst í fréttabréfum klúbbsins í gegnum tíðina.

Hjólaleiðir

Síða 2 af 27

  • 1
  • 2
  • 3
  • 4
  • 5
  • 6
  • 7
  • 8
  • 9
  • 10

Fjallahjólaklúbburinn
Netfang: ifhk@fjallahjolaklubburinn.is
Kt. 600691-1399
Banki: 515-26-600691

Vafrakökur og persónuvernd

Vefur unninn af Hugríki.is.