Við höfum verið einstaklega heppin með veður það sem af er vetri: vissulega kalt, en tiltölulega bjart yfir og hægur vindur. Aldrei hafa færri en fimm manns mætt í laugardagstúr og oftast höfum við verið um 8–10 manns.
Ljóst er að við munum halda þessu áfram í vetur og síðan taka þriðjudagskvöldferðirnar við í maí. Brottför er á laugardögum frá Sævarhöfða 31 kl. 11:00. Öll eru velkomin og ekkert þátttökugjald. Nú hjólum við saman vikulega allt árið um kring, í fyrsta sinn í mörg herrans ár.
Ef þú ert að lesa þetta árum eftir útgáfu þessa Hjólhests er mikilvægt að fletta okkur upp á Facebook og athuga hvort við séum ekki enn að hjóla, hvaðan og klukkan hvað. Við erum með viðburð sem gott er að melda sig á — þá berast áminningar í tæka tíð.
Svipmyndir
Birtist fyrst í Hjólhestinum, mars 2026