Fólk þarf að hafa með sér nesti til tveggja daga og drykkjarföng. Bæði fyrir daginn, þar eð engir lækir eru á leiðinni og það sem menn vilja kneifa um kvöldið. Sameiginleg máltíð á laugardagskvöldi (innifalið í verði) og hafragrautur á sunnudagsmorgni. Taka þarf með rúmföt (lak, sængur og koddaver), tannbursta og sundföt. Fylgdarbíll tekur farangur og aðrar pjönkur og möguleiki á að fá aðstoð upp Hengilinn ef brekkurnar taka um of í. Það er sjónvarp í bústöðunum og hægt að fylgjast með Eurovision keppninni sem verður á laugardagskvöldið.

Á sunnudag verður lagt af stað um hádegisbil og sama leið hjóluð til baka. Það er takmarkað gistirými, svo það þarf að bóka sig fyrirfram í ferðina. Sendið email á
Fólk er á eigin ábyrgð í ferðum Fjallahjólaklúbbsins.
-Ferðanefnd