Atburðaalmanak

Previous month Previous day Next day Next month
Skoða allt árið Skoða mánuðinn Skoða viku Skoða daginn í dag Leita Velja mánuð
Laugardagshjólatúr
Laugardagur 14 nóvember 2026, 08:00 - 17:00

Vegna góðrar þátttöku síðasta vetur ákváðum við að endurtaka leikinn og hafa laugardagshjól í vetur.  Til að byrja með verður hjólað frá Hlemmi kl 11:00.  Alla vega út október.  Þegar við verðum orðin leið á því munum við færa brottfararstaðinn.  

Ferðirnar eru með sama sniði og síðasta vetur.  Við hittumst, hjólum og stingum okkur inn í bakarí, kaffihús eða matsölustað.  

Lengd ferðanna er stillt í hóf, 60-90 mínútur, enda má búast við versnandi og kólnandi veðri.

Öll velkomin, ekkert þáttökugjald.  Ferðirnar verða eilítið frjálslegar, það er ekki skipuleg dagskrá, óskir þeirra sem mæta ráða för.  Ef einhver vill leiða ferð, þá er minnsta málið að kasta inn pósti á þennan viðburð og eigna sér ferðina.  Þá er viðkomandi einráður þann daginn.

Hér er Facebook viðburðurinn, gott að merkja sig á hann og fá áminningu tímanlega. https://fb.me/e/6RYatt4Ks
Hér má sjá myndir frá laugardagshjólatúrunum síðasta vetur: https://photos.app.goo.gl/oDLMio1gZaC9mE7h6