Fjallahjólakeppnin á Smáþjóðaleikunum verður haldin föstudaginn 3. júní en götuhjólreiðarnar fara fram 31. maí og TT 2. júní. Þær kepnnir eru nokkuð svipaðar því sem við eigum að venjast en hinsvegar má segja að fjallahjólakeppnin verði ný raun fyrir okkar fólk.
Meðfylgjandi mynd er hæðarprófíll af brautinni (hægt að smella á tvisvar til að sjá stærri). Hún er 5km að lengd og er að mestu skógarstígar í Schellenberg. Hjólaðir verða 6 hringir, samtals 30 km sem er auðvitað ekki löng vegalengd. Þetta hljómar því eins og þægilegar föstudagsfjallahjólreiðar í fallegu umhverfi. Þegar hæðarprófíllinn er skoðaður nánar kemur í ljós að hækkun í hverjum hring er 282m og samtals hækkun því næstum 1700m. Til samanburðar þá er heildarhækkun í Öskjuhlíðar- og Rauðavatnskeppnunum um 350-400m og þykir mörgun nóg um. Það er því ekki víst að íslensku keppendurnir nái að njóta fegurðarinnar á leiðinni mikið með púlsinn í botni í 25-30stiga hita í 2 tíma. 13 konur og 28 karlar eru skráðir í forskráningu í keppnina. Brautin var vígð síðasta sumar þegar meistarmót Liechtenstein í fjallahjólreiðum fór þar fram. Meðfylgjandi er kort, úrslit og myndir frá þeirri keppni. Þar má m.a. sjá menn leiða hjólið niður brekku en það hefur hingað til ekki verið talið bæta tímann mikið að labba með hjól niður brekkur. Það er sennilega einhver góð ástæða fyrir því sem gæti verið drulla.
Fyrir veturinn í ákvað ég í fyrsta skipti að skrifa niður æfingaplan. Það sem rak mig helst af stað í þetta var einfaldlega sú staðreynd að í vetur hef ég ekki alveg sama tíma aflögu og áður á kvöldin vegna breyttra aðstæðna heimafyrir og því var bara eitt í stöðunni. Aðlagast! Ég fjárfesti í powermæli í haust sem ég ákvað að ég yrði að nýta sem allra best við æfingarnar. Án þess að fara ítarlega í æfingaplanið sjálf að þá er ég í fyrsta skipti farinn að gera interval æfingar að vetri til og þar spilar áður nefndur powermælir stórt hlutverk.
Á bakvið svona æfingar eru býsna
flókin fræði og er hægt ýmsan fróðleik á netinu ásamt
þónokkru magni af bókum sem hægt að er að nálgast með
einföldum hætt í gegnum netið. Eftir að hafa ráðfært mig við
fróða einstaklinga og farið í gegnum mikið efni á netinu að þá
barði ég saman prógramm og mig langar til þess að deila einni
svona æfingu með ykkur. Þetta er æfinga sem ég hjóla inni á
trainer og styðst nær einöngu við power. Þetta er dæmigerð
svona interval æfing eins og ég nefni hér að ofan. Markmiðið
með æfingu sem þessari er að hækka mjólkursýruþröskuldinn en
til þess að gera það er hjólað sem næst þröskuldinum í
ákveðið langan tíma, svo slakað á. Sú æfing sem ég deili með
ykkur hér hefur ákveðna uppskrift sem hljómar svona: 3x(8 LT + 4
50%). Fyrir þá sem ekki skilja þetta þá þýðir þetta þrjú
intervöl á þröskuldi með fjögurra mínútna millibili þar sem
hjólað er á 50% álagi af þröskuldi til þess að jafna sig.
Þetta þýðir að líkmaninn er þarna að fá 24 mínútur af
álagi sem er mjög nálægt mjólkursýruþröskuldinum.
Til þess að þessar æfingar skili tilsettum árangri er mjög mikilvægt að taka próf með ákveðnu millibili til þess að sjá hvort að þér sé að fara fram eða aftur. Ef allt gengur að óskum og þér fer fram. Nú þá er nauðsynlegt að breyta intervölunum og hækka álagið sem nemur bætingunni. Svona próf ætti að framkvæma á 4-5 vikna fresti og þá helst í lok rólegrar viku.
Með því að smella á linkinn hér
fyrir neðan getði þið auðveldlega skoðað æfinguna. Hún
byrjar á stighækkandi upphitun sem er alltaf eins, eða 15 mínútur.
Síðan fer ég beint í intervölin og ættu þau að sjást býsna
vel á línuritinu. Ef þetta er skoðað nokkuð grant má glögglega
sjá að púlsínn er nokkuð hærri í seinasta intervalinu heldur
en því fyrsta en þó er “power outputtið” (krafturinn sem fer
í pedalana) svo til sá sami.
Ef það vakna einhverjar spurningar í kringum þetta að þá vil ég endilega hvetja ykkur til þess að varpa þeim fram í athugasemdum hér að neðan.
Æfinguna má nálgast með því að smella hér.
Pétur Þór Ragnarsson
Æfingar um jólin hafa gengið ágætlega. Veðrið fór að verða til leiðinda þannig að útiæfingar breyttust nokkuð. Það er mjög erfitt að hjóla lengi þegar það er hríð eða púðursnjór vegna þess að snjór fer í tannhjólin og það verður erfitt að halda keðjunni á tannhjólunum í átaki.
Fyrir digga lesendur síðunnar sem staddir eru erlendis koma tvær myndir með þessari stuttu færslu. Annars vegar er það mynd frá æfingu í gær (jóladag) sem tekin var í Heiðmörk en þá var kominn sæmilegur snjór. Hin myndin var svo tekin á æfingu í dag. Þá var allur snjór farinn og standard rok og rigning í borg bleytunnar. Ef meðfylgjandi mynd prentast vel má sjá að helsta veðurathugunartækið á Reykjavíkurflugvelli er lárétt í rokinu.
Meðalhraði á æfingunni eftir 60 mínútur var 28,5km/klst á fjallahjólum. Ekki fæst uppgefið hver meðalhraðinn var þegar búið var að hjóla í mótvindi líka
Íslenski fjallahjólaklúbburinn,
Brekkustíg 2,
101 Reykjavík.
Netfang: ifhk@fjallahjolaklubburinn.is
Kt. 600691-1399
Banki: 515-26-600691
Vafrakökur og persónuvernd
Vefur unninn af Hugríki.is.