Eftir að hafa séð þáttinn á YouTube í 6 bútum leiddi ég hugann að mínum
fuglaupptökum þar sem segja má að fugl hafi sungið sér til ánægju fremur
en annað.
Jú og viti menn ég fann eina upptöku úr garðinum frá því 9. júní 2012
undir flokknum “test”. Var ég þar að prófa parabóluskerm með Shure
MX391/O hljóðnemum og biluðum PIP-Phantom power breyti sem ég hafði fengið sendan frá Sound Professionals.
Þó upptakan hafi sína galla þá hefur hún að geyma skemmtilega uppákomu úti í garði þetta kvöld.
Í nágrenninu var nokkuð fjörugt garðpartí með útitónleikum þegar
svartþrösturinn í næsta garði fór upp á loftnet og tók lagið með
hljómsveitinni. Fyrst þegar hann kom var hann jafn hljóðlátur og
venjulega þar sem hann muldraði í barm sér. En skyndilega tók hann við
sér og söng allt hvað af tók, svo mjög að ég hafði ekki heyrt annað eins
úr barka hans frá því hann kom í hverfið nokkrum árum áður.
Því miður voru ekki réttu græjurnar á staðnum. Hljómurinn er því ekki
eins góður og á verður kosið, auk þess sem hávaði frá bílaumferð er allt
of mikill að vanda. En upptakan er engu síður þess virði að á hana sé
hlustað.
Recorder: Sound Devices 744T
Mics: Shure MX391 fit into 54cm parabolic disk, connected to SP-XLRM-MINI-2-PHANTOM
Pics. Nokia N82