Framljós – nýtt frá Cateye

Þá er enn einn veturinn genginn í garð og um leið tími ljósanna. Úrvalið á íslenska markaðnum hefur lítið breyst frá fyrri árum, hvað þá frá úrvali síðasta árs. Trek er þó komið með ný díóðuljós og Hjólhestinum barst í hendur glæný ljós frá Cateye. Örninn er umboðsaðili beggja framleiðenda.  

Þegar þetta er ritað þá var verðið á ljósunum ekki komið né heldur var hægt að lesa um þau á heimasíðu Cateye. En það er nokkuð spennandi að vera með þeim fyrstu að skoða ljós sem eiga líklega eftir að vera á markaðnum næstu 2-4 árin. Hér eru á ferðinni smáspennuljós sem flest ganga á 2,6 – 3,0 voltum fyrir utan eitt sem gengur á 5,4 - 6,0 voltum. Þetta eru því ódýrustu ljósin frá Cateye og má gera ráð fyrir því að verðið sé í öllum tilvikum undir 3500 kr. Cateye er þegar farin að hefja framleiðslu þessara ljósa úr gagnsæju plasti sem nýtir ljósið mun betur. Það á hins vegar eftir að koma í ljós hvort það verði til þess að ljósið skíni beint í augu hjólreiðamanns með tilheyrandi truflun. 

Við byrjum á stóru  og miklu stýrisljósi sem heitir Cateye HL-270 Krypton. Stærð þess ræðst af stærð rafhlaðanna sem eru tvær sellur af stærðinni D eða samanlagt 3 volt. Stórar rafhlöður þýðir löng ending rafhlöðu enda stendur á ljósinu „20 hours run time“.  Það getur vart staðist því peran er venjuleg Krypton 2,4 volt 0,5 Amper og alkaline rafhlöður af D stærð eru vart meira en 5-8 amperstundir (Ah). Svo með besta hugsanlega árangri mætti segja að ljósið entist allt að 16 tíma og þá er spennan komin í 0 volt. Rafhlöður endast því vart lengur en 10 tíma, breytilegt eftir gerð þeirra. Með þessu ljósi væri afar snjallt að nota LiMH (Lithium Metal Hydrid) rafhlöður. Slíkar rafhlöður af D stærð ráða vel við 0,5 amper straum og þar með er hægt að fá hleðslu sem dugir u.þ.b. jafn lengi og á Alkaline rafhlöðu. Þær rafhlöður sem til eru á íslenskum markaði eru 7 amperstundir

Svo við snúum okkur að ljósinu sjálfu  þá er lítið ljós sem skín beint frá ljósi upp í augu hjólreiðamanns. Spegillinn er stór og hliðargeisli nokkuð góður. Akstursgeislinn er þokkalega góður miðað við hvað þetta ljós er lágspennt. Út frá honum til beggja hliða brotnar geislinn upp í línur sem gætu pirrað sjáöldur hjólreiðamanns í miklu myrkri. Inni í ljósinu er festing fyrir varaperu og rofinn er loks orðinn vatnsheldur og undir þéttri gúmmítuðru.  Festingin fyrir ljósið er klemma sem skrúfuð er utan um stýrið (H-28).  Hún er svipuð og eldri gerð en hefur breyst lítillega (eingöngu breytinganna vegna og þá til verri vegar). Hvað um það, ef þú ert með fleiri en eitt hjól en aðeins eitt ljós þarftu að skipta út öllum festingum.

hl-270l.jpg

Cateye HL-270 Krypton

Hh-550l.jpg

Cateye HL-550 Luminux Halogen

Næst skulum við líta á annað minna ljós, Cateye HL-550 Luminux Halogen. Þarna er á ferðinni lítið eitt endurbætt útgáfa af  eldri gerð sem áður hefur verið prófuð í Hjólhestinum HL-500, ljós sem hægt var að gefa einkunnina „betra en ekkert ljós“.  Hér er þó komið nýtt ljós og virðist sem starfsmenn Cateye hafi lagfært ýmsa stóra galla. Nú er kominn vatnsþéttur rofi, sýnilegri hliðargeisli og breyttur akstursgeisli og ekki þarf heldur lengur skrúfjárn til að opna ljósið. Stýrisfestingin (H-30) gefur möguleika á því að snúa ljósinu um 20 gráður eins og eldri festingin (H-27).

Hægt er að kippa festingunni af stýrinu án þess að nota verkfæri sem er góður kostur en gallinn er að búið er að breyta festingunni örlítið, eingöngu breytinganna vegna. Það gengur því illa að nota  eldri gerðir ljósa á þessum festingum og öfugt. Rafhlöður eru af stærð C og því ætti að reyna LiMH hleðslurafhlöður sem eru 3,5 Ah.  Peran er Halogen 2,5 volt og 0,4 amper. Það er því eins og gamla ljósið HL-500, fremur dauft og getur vart fengið aðra einkunn en „betra en ekkert ljós“.  Skiptir þá litlu hvort kominn sé hliðargeisli og betri akstursgeisli.  Ljósið er of lítið og dauft. Auk þess sem fólk freistast til að tæma rafhlöðurnar algerlega áður en það kaupir eða hleður rafhlöður á nýjan leik. Það nýtist því vart til að lýsa fram veginn, hvað þá að nota það í bílaumferð.

Nú er komið að öðru ljósi, Cateye HL-MC200 Luminux Micro Halogen.  Það líkist mjög ljósi sem Hjólhesturinn hefur prófað áður,  HL-500II. Ljósið er hannað fyrir 4 stunda AA rafhlöður (6 volt). Peran er sú sama 4,8 volt 0,5 amper, perustæðið G2,5 (2 pinnar) sem fæst aðeins í versluninni Erninum. Spegillinn er ekki sérlega vandaður, geislinn er fremur ójafn en þó skárri en á HL-500II því hér er hann stærri og því betri ökugeisli. Hliðargeislinn er góður en það er þó nokkuð ljós sem skín í augu hjólreiðamanns sem ekki er gott. Það er reyndar ekki meira en svo að það plagar vart aðra en þá allra viðkvæmustu. Ljósrofin er þrýstirofi undir gúmmihlíf og virðist það orðið staðlað hjá Cateye. Ekki var ljóst hvernig rafhlöður áttu að snúa í ljósinu. Fólk ætti því að lesa leiðbeiningarnar utan á umbúðunum vel áður en þeim er kastað.

Stóri gallinn við þetta ljós er að ekki er hægt að tengja stærri rafhlöður eins og hægt var á HL 500II. Það er því afskaplega freistandi að nota LiMH rafhlöður með þessu ljósi því þær eru 1,6 Ah á móti 0,9 Ah með NiCad rafhlöðum. Slík hleðslurýmd ætti að duga í nærri 2 kst. Gallinn er hins vegar sá að slíkar rafhlöður af AA stærð, ráða illa við 0,5 amper og geta því eyðilagst á skömmum tíma. Þetta hefur hins vegar ekki verið prófað af Hjólhestinum og því ekki vitað með vissu. Ef  þú, lesandi góður, hefur prófar það væri gott að heyra frá þér.

hc-mc200l.jpg

Cateye HL-MC200 Luminux Micro Halogen

lg-hd100l.jpg

Þá er komið að ljósi sem heitir Cateye LH-HD100 Luminux Halogen. Það svipar til ljóssins HL-550 nema nú er ljósið að hálfu smíðað úr steyptu og rafhúðuðu áli. Það lítur því öllu verklegar út en fyrra ljósið. En ekki er allt sem sýnist. Ökugeislin er lélegur og svo að segja enginn hliðargeisli. Að öðru leyti er lýsingin sú sama og á HL-550 ljósinu með öllum sínum kostum og göllum. Sami spegill en þó ekki gler. Sami rofinn og sama stýrisfestingin (H-30). Ég ætla því að spara mér frekari tíma og pappír og snúa mér að næsta ljósi.

Díóðuljós - Blikkljós
Við skulum snúum okkur aðeins að fræðunum. Ljósstyrkur ljósadíóða er mældur í ljósstyrk á fermetra (cd/m2) eða luminance intensity (mcd) og þá er hann mældur við kjörstraum sem vanalega er 20mA í ljósadíóðum reiðhjólaljósa. Síðan eru framleiddar margar gerðir lita, t.d. af rauðu, en liturinn er mældur í bylgjulengd, nanometrum (nm). Auk þess hefur dreifing ljóssins mikið að segja um styrkleika þess en dreifingin er gefin upp í gráðum. Þá er ljósstyrkurinn háður stærð ljósadíóða. Flest hjólaljós hafa 5 mm ljósadíóður. Í þeim stærðarflokki er að finna sterkustu ljósadíóðurnar.   
Svo tekið sé dæmi um úrvalið þá eru sterkustu ljósin líklega gul að lit, framleidd af  HP, 590nm, 9300mcd við 6°. Þetta sama 590nm ljós dofnar í 1800mcd við 15°. Rautt ljós framleitt af Everlight, 660nm er 3000mcd, við 12°.  Er það mikið notað í afturljós. Hvít ljósdíóða framleidd af sama aðila er 3700mcd við 13°  Síðan er það háð hverjum og einum hvernig hann skynjar ljósið. Þannig mundu flestum finnast rauðu ljósin sterkust vegna þess að mannsaugað hefur afskaplega takmarkað sjónsvið. Svo ljósdíóða gefi fullt ljós er mikið atriði að hún fái fulla spennu, því er ekki hægt að notast við hleðslurafhlöður sem gefa aðeins 1,25 volt p/sellu á móti 1,5volt á Alkaline

Cateye TL-LD550-BBR Reflex-Lite er rautt afturljós sem lítur út eins og venjulegt glitauga en er þó örlítið þykkara. Stærsti flötur þess er glitauga en út í jöðrunum beggja vegna eru 5 ljósdíóður sem hægt er að láta bæði lýsa stöðugt eða blikka.

Rafhlaðan er af stærð N sem ekki fæst hvar sem er. Hún er örlítið styttri en AAA rafhlaða og að sama skapi með minni hleðslurýmd. Það er mikill galli því spennan (volt) á rafhlöðunni má ekki fara niður fyrir 1,3 volt pr. sellu svo ljósmagnið á ljósadíóðunum hafi minnkað um nær helming. Þetta er töluvert vandamál með ljós sem nota rafhlöður af AAA stærð. Ekki bætir það úr skák að ljósadíóðurnar eru 10 talsins og ef við gerum ráð fyrir að meðalstraumur hverrar ljósadíóðu sé 20mA þá er heildarstumurinn 200mA sem er mikið fyrir svo litla rafhlöðu. En hverjir eru kostir þessa ljós? Ljósið er létt og smellt á klemmu sem fest er utan um sætisstoðina. Því er með einu handtaki hægt að kippa festingum af ef leggja á hjólið þar sem hætta er á að ljósinu verði stolið eða það eyðilagt. 

tl-ld-550l.jpg

Cateye TL-LD550-BBR Reflex-Lite

Ef rafhlöðurnar klárast þá getur glitaugað, sem stenst evrópskan gæðastaðal, bjargað málum um stund. Það má því segja að ljósið henti flestum því ekki geta allir keypt rafhlöður reglulega eða um leið og ljósið dofnar.
Nú er komið að ljósum frá Trek. Um er að ræða hvítt díóðuljós að framan og samskonar ljós, en rautt, að aftan. Við skulum byrja á framljósinu og hvernig lýst ykkur á nafnið - Trek Disco Tech? Þetta er ein hvít ljósdíóða sem gengur fyrir tveimur AAA rafhlöðum. Hvítar ljósadíóður eru nýjar á markaðnum þ.e.a.s. nýjasta afurð ljósadíóðuframleiðslunnar. Þær eru ekki eins bjartar og rauðu ljósadíóðurnar en þær hafa þó orðið bjartari síðustu misseri. Trek segir að ljósið eigi að sjást í 900 metra fjarlægð. Ég þori hins vegar að fullyrða að þetta er bull! Þetta segir ekkert og er slæmt ef það á að fylla hjólreiðamann öryggiskennd. Enginn segir mér að 17 ára barn sem er nýkomið með bílpróf, í formúluleik á götum úti, taki eftir blikki á einni ljósdíóðu í 900 metra fjarlægð. Það væri eins og að sjá lús í hári manns í 10 metra fjarlægð. Ég er ekki einu sinni viss um að allsgáður ökumaður mundi taka eftir því þó svo hann reyndi. Það er þó hugsanlegt ef enginn önnur ljós eru umhverfis til að dreifa athyglinni og ljósgeisli díóðunar sé beint að viðkomandi. Trek hefði hins vegar frekar átt að treysta kaupandanum fyrir mælanlegri staðreynd t.d. gefa upp ljósstyrk í mcd.

trekfrontl.jpg

Trek Disco Tech (front)

Þetta hvíta ljós er ekki langt frá bláa litasviðinu og því finnst flestum það ekki sérlega sterkt nema frá þröngu sjónhorni séð og þá er það vissulega sterkt. Trek hannar sérstaka linsu utan um ljósdíóðuna til að nýta ljósið sem best og svo það sjáist sem best frá öllum hliðum. Ljósadíóður hafa hins vegar sín takmörk, sérstaklega „einmana“ díóða. Þær virka best með öðrum ljósum.
Þar er komin skýringin á því hvers vegna Trek varar eindregið við því að þetta ljós sé notað sem framljós eitt og sér. Það hentar ágætlega með öðrum hvítum ljósum framan á stýrið.  Því fleiri ljós, því betra. Það er slæmt að ekki séu fleiri ljósadíóður í ljósinu. Hins vegar er líklegt að það sé vegna þess að hvítar ljósadíóður eru 5-10 sinnum dýrari en þær rauðu. Þó glært plastlokið og linsan reyni að brjóta upp ljósgeislana og nýta hann sem best þá dugir það engan veginn. Á móti kemur að ljósið ætti að endast töluvert lengi í blikkstöðu. Trek segir yfir 100 klst !

Þegar átti að setja rafhlöður í ljósið kom babb í bátinn. Rafhlöðurnar komust ekki í hvíta ljósið nema með afli. Til að geta séð virkni rauða ljóssins þurfti ég að tengja það við aflgjafa.  Ég var með venjulegar AAA rafhlöður frá Panasonic. Þegar ég var búinn að krafsa rafhlöðurnar úr hvíta ljósinu að lokinni prófun, var plasteinangrunin á rafhlöðunum komin í tætlur. Það gæti því reynst snjallt að skafa niður brúnir í ljósinu sem skorða eiga rafhlöðurnar af. Það er sannast sagna vart á færi allra að skipta um þessar rafhlöður.
Ljósafestingin er fest á stýrið og er líklega gott að setja límbandi um stýrið þar sem klemman á að vera því annars mun festingin snúast á stýrinu og beina ljósinu til jarðar. Reyndar er þetta lausn sem ávallt ætti að hafa í huga við hvaða ljós sem er. Það er hiklaust hægt að mæla með þessu ljósi MEÐ ÖÐRU HVÍTU FRAMLJÓSI !

Rauða afturljósið er nákvæmlega eins og framljósið nema nú er sérhannaða linsan utan um ljósdíóðuna öðruvísi og glerið rautt. Það er því fátt sem hægt er að bæta við fyrri lýsingu. Það er samt hægt að benda á nokkur atriði: Þetta ljós er ótrúlega stekt þó þarna sé aðeins ein ljósdíóða.  Með þessari sérhönnuðu linsu framan við díóðuna þá hefur ljósið góðan hliðargeisla og vegna þess að ljósið hefur aðeins eina ljósdíóðu þá endist fullt ljós lengur en almennt gengur og gerist. Það gæti því verið gott að hafa Trekk ljósið með öðrum straumfrekari afturljósum því þegar þau eru orðin dauf þá er enn fullt ljós á Trek Disco Tech. Þetta ljós gæti dregið að sér athygli í 900 metra fjarlægð!

afrurljosl.jpg

Trek Disco Tech (rear)

Eftirmáli - Stigataflan

Það er alltaf erfitt að gefa einkunnir fyrir ljós. Taflan hér fyrir neðan gefur einkun frá 1 til 10 og er reynt að hafa hliðsjón af eldri prófunum Hjólhestsins til að samræma einkunargjafir.  Það er bæði háð huglægu og sýnilegu mati og þá sérstaklega hvort það sé öruggt  í umferð eða ekki. Matið er lika háð þróun ljósa í tímans rás. Það er hins vegar staðreynd að reiðhjólaljós í þeim gæðaflokki sem fengist hafa á íslenskum hjólamarkaði hafa lítið sem ekkert þróast síðustu 10 jafnvel 20 árin. Þar á ég við gæði ljósanna. Ljósin hafa hins vegar breyst í útliti og þættir eins og festingar og rofar endast nú mun betur. Þó hafa komið á markaðinn ljós sem hafa skarað framúr í gæðum, öryggi og áreiðanleika. 

Almeningur vill þó fremur kasta krónuni og spara aurinn og leggja þar með líf sitt í hættu með kaupum á lágspenntum ljóstírum sem hafa lítið sem ekkert að segja í vitfirrtri bílaumferð þar sem flestir aka hraðar en aðstæður leyfa. Flest ljós á íslenskum markaði myndu duga ef nota á þau í umhverfi þar sem litið er af  sterkum ljósum sem venjulega yfirgnæfa ljóstíru hjólreiðamanns. Öll sú áreitni ljósa sem ökumenn verða fyrir verður til þess að ljóstírur hverfa með öðrum sterkari ljósum. Þó hjólreiðamaður telji sig vera löglegan með ljós að framan og aftan þá þarf ökumaður að verða var við ljós reiðhjólsins áður en hann verður var við hjólreiðamanninn sjálfan. Þannig er síður hætta á því að ökumanni bregði og hann skeyti skapi sínu á hjólreiðamanni með ökutæki sínu, sem því miður er ótrúlega algengt.

Ljósin í þessari grein geta flest talist til þessara ljóstýra og því ætti almenningur fremur að skoða háspenntari ljós með stærri rafgeymum ef það á annað borð ætlar að nota hjólið til samgangna.  Þá ber að skoða ljós að lágmarki 6 Volt, 2,5 Wött með geymi yfir 3 Ah. En allra besti kosturinn og sá vistvænasti eru rafalar. Því miður hafa verslanir á Íslandi hins vegar ekki fylgt þeirri byltingu sem orðið hefur í smíði þeirra. Meira um það á vefsíðu NÁTTÚRU;  http://icebike.net  . Þar er hægt að velja „Hjólreiðar“, síðan „Tæknilegt efni“. Þessi síða verður uppfærð reglulega í vetur og þar mun verða hægt að sjá hvaða ljós henta best og hvaða ljós eru best á íslenskum markaði.

Ath. Einkun 1  er lægst og 10 er hæst.  Athugasemd aftan við einkun er ástæða þess að ljósið fái þessa hæstu mögulegu einkun.
 

Ljósategund:

 Til notkunar í umferð:

 Til notkunar í ferðalög:

Cateye HL -270

 5 v/ stærðar ljósspegils

 4 v/ stórra rafhlaða

Cateye HL -550 

3 v/ hliðargeisla

 2- viðleitni að vera með ljós

Cateye HL-MC200 

4 v/ hliðarg. og hærri spennu

 3 v/ nothæfs ökugeisla

Cateye LH-DH100

 3 - ætti líklega frekar að fá 2

 2 - viðleitni að vera með ljós

Cateye TL-LD550-BBR

 7 v/ góðs glitauga og hliðarg.

 5 - viðleitni að vera með ljós

Trek Disco Tech  Frammljós 

7 - með öðru ljósi, annars 2

 1 - betra en ekkert

Trek Disco Tech

Afturljós 8 v/sparara rafhlöður, gott ljós

 5 - gott með öðrum ljósum

Magnús Bergsson - This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. - www.islandia.is/nature/ 

© Hjólhesturinn 3.tlb. 9.árg. 2000

Lesið fyrri greinar Magnúsar um ljósabúnað, eða skoðið heimsíðuna hans http://www.icebike.net/