Meðan þúsundir íslendinga eyddu 17 júní 1994 í bílaröð frá Reykjavík til Þingvalla og til baka án þess að sjá neitt, hjólaði hópur frá Íslenska Fjallahjólaklúbbnum á staðinn og skemmti sér vel. Hér eru nokkrar myndir sem Guðrún Ólafsdóttir tók á leiðinni.

Nú er bara að vona að skipuleggjendur hátíðarhaldanna á Þingvöllum árið 2000 kynni sér fyrirbæri sem nefnist almenningssamgöngur og eru notaðar erlendis með góðum árangri til að koma miklum fjölda fólks á milli staða með litlum tilkostnaði á umhverfisvænan hátt. En einhvernvegin minnir mig að einhverjir hafi talið tafirnar 94 hafa orsakast af því að fólk hafi verið svo lengi að finna bílastæði á Þingvöllum og því ákveðið að byggja ný bílastæði fyrir allan bílaflota landsmanna á Þingvöllum fyrir árið 2000.

17j-g-10.jpg

17j-g-9.jpg

17j-g-13.jpg

17j-g-17.jpg

Það var góður hópur sem hjólaði á Þingvelli og að sjálfsögðu voru börnin ekki skilin eftir

 

 

 
17j-g-21.jpg

 

 17j-g-18.jpg

 

 17j-g-20.jpg17j-g-16.jpg

 

Komið til Þingvalla, sest niður og slappað af eftir hjólatúrinn.


Texti: Páll Guðjónsson

Allar myndir © Guðrún Ólafsdóttir