Förin "Hjóla sveitafélögin saman" hófst kl.12 við Sundlaug Seltjarnarness. Þar var hjólalögreglan mætt til að fylgja hópnum sem lagði upp í ferðina að Fjölskyldugarðinum ásamt fulltrúum úr sveitastjórn Seltjarnarness. Lesið frásögn Haraldar Tryggva og skoðið myndirnar sem hann tók hér fyrir neðan.
Ég vil þakka klúbbfélögum fyrir frábæran stuðning við þetta verkefni "Hjólum sveitafélögin saman". Það var vaskur ÍFHK hópur sem var kjarninn í ferðinni og lét ekki veðrið aftra sér. Margir fóru alla leið og aðrir styttri spotta, meira að segja með börnin á tengihjólum eða í kerrum.
Ég verð að segja það að ég var virkilega stolt af ykkur öllum og gaman að vera í forsvari fyrir svo samheldinn hóp sem hjálpaðist að við að vinna úr því sem upp á kom. Hvort heldur það var að aðstoða í umferðinni eða fylgja fólki og hvetja áfram þegar vindhviðurnar feyktu því frekar afturábak en áfram.
Stoltur formaður ÍFHK, Alda Jóns
Sveitafélögin hjóluð saman
Förin "Hjóla sveitafélögin saman" hófst kl.12 við Sundlaug
Seltjarnarness. Þar var hjólalögreglan mætt til að fylgja hópnum sem
lagði upp í ferðina að Fjölskyldugarðinum ásamt fulltrúum úr
sveitastjórn Seltjarnarness. Veðrið var ekki sem best 6°C, 10.m/s kaldi
og rigning.
Þegar hópurinn var kominn að gatnamótum Mýrargötu og Ægisgötu slóst borgarstjóri inn í hópinn og hjólaði með sem leið lá í Fjölskyldugarðinn þar sem boðið var upp á veitingar. |
|
Þegar var komið í Engihjallann í Kópavogi hafði bæst í vindinn og helltust einhverjir úr lestinni. Komu fulltrúar bæjarstjórnar og slógust með í för eftir að fólk hafði þegið veitingar. |
|
Þessi mynd er tekin við mörk Garðabæjar. Í verslunarkjarnanum á Garðatorgi tóku fulltrúar úr bæjarstjórn á móti hópnum, einn fulltrúanna úr bæjarstjórn flutti nokkur orð og sagði að þetta væri gott framlag til að bæta samgöngur fyrir hjólreiðafólk. Þarna stækkaði hópurinn sem hjólaði síðan til Hafnafjarðar. Við Fjarðarkaup komu fulltrúar bæjarins í fylkinguna og hjólað var að Skátaheimilinu við Víðistaðatún þar sem boðið var upp á kaffi og kleinur.
Með kveðju: Halli Tryggva. Myndir HT. |
|
Aðdragandinn: |
Boðskapurinn er að fólk noti annað en einkabílinn til að komast á milli staða og dagskrárliða helgarinnar. Einnig er þetta ábending um hvað erfitt er að komast á milli sveitafélaga og þarft að benda pólitíkusum á það og óska eftir úrbótum. |
|
© ÍFHK |