Lagt af stað laugardaginn 10 maí kl 11:00 frá Olís Bensínstöðinni við Norðlingaholt. Hjólað eftir Suðurlandsvegi, beygt inn á veg nr. 431, Hafravatnsveg. Þaðan farin Nesjavallaleið upp með Henglinum, niður að Þingvallavatni og áfram til Úlfljótsvatns, þar sem gist verður í góðum bústöðum með heitum potti. Leiðin er 50 km, að mestu á malbiki. Allar tegundir af reiðhjólum henta, nema racer. Fólk þarf að hafa með sér nesti til tveggja daga, það verður sameiginleg máltíð á laugardagskvöldi (innifalið í verði), drykkjarföng að eigin vali, rúmföt (lak, sængur og koddaver), tannbursta og sundföt. Trússbíll tekur farangur og aðrar pjönkur, möguleiki á að fá aðstoð upp Hengilinn ef brekkurnar taka um of í. Það er sjónvarp í bústöðunum og hægt að fylgjast með Eurovision keppninni sem er á laugardagskvöldið.
Næsta dag er lagt af stað um hádegisbil og hjóluð sömu leið til baka. Það er gistirými fyrir 16 manns, svo það þarf að bóka sig fyrirfram í ferðina. Sendið email á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. og tiltaka fjölda þáttakenda. Verð pr fullorðinn 6000 kr. Innifalið gisting, kvöldverður, hafragrautur í morgunmat og trúss á dóti. Fararstjóri er Hrönn Harðardóttir, gsm: 823-9780 Erfiðleikastig 6 af 10. Leiðin er að mestu á malbiki, brattar brekkur reyna á þol þáttakenda, en þetta er líka fín leið til að prófa formið fyrir ferðir sumarsins. 5-7 klst í austurátt, 4-6 í vestur.