Félagsgjöldin eru komin í heimabanka flestra og sumir búnir að borga. Þau eru óbreytt frá því löngu fyrir hrun, aðeins 2000 kr eða 3000 kr fyrir alla á heimilinu.

Við viljum hvetja fólk að borga sem fyrst því þá getum við sent nýtt félagskírteini með Hjólhestinum og sparað klúbbnum auka póstburðargjöld. Glænýr Hjólhestur bíður í prentsmiðjunni, óvenju stór og pattaralegur enda stútfullur af efni.

Þau ykkar sem ekki eruð félagsmenn ættuð að kíla á það að ganga í klúbbinn og styðja við bakið á okkur. Það kostar litlar 2000 kr sem sparast fljótt með þeim afsláttum sem bjóðast gegn framvísun félagsskírteina. Sjá nánar hér .

Stjórnin