Framundan er 3ja daga hjólahelgi.  Gist á tjaldsvæðinu á Hvammstanga eða hver og einn planar sína gistingu.  Aksturstími á Hvammstanga er ca 2.5 klst, um 200 km.


Dagur 1 – föstudagurinn 17 júní.
Hittumst á tjaldsvæðinu á Hvammstanga kl 10:30 og leggjum af stað akandi í austurátt nokkra kílómetra.  Svo hjólum við 25 km friðsælan sveitahring suður að Kolugljúfri.  Við munum grilla saman á tjaldsvæðinu, grænmetissalat og kartöflusalat er í boði klúbbsins, hver og einn tekur með það sem á að grilla.  Upplagt að taka með Íslenska fánann og hafa á stýri eða bögglabera.  Hjólað er á malbiki, að hluta til á þjóðvegi 1 og sveitavegirnir við Kolugljúfur gætu verið fjölfarnir.  Erfiðleikastig 4 af 10.

Dagur 2 - laugardagur
Lagt af stað kl 11:00 að Borgarvirki.  Þar munum við hjóla 26 km hring.  Fara svo í sund og út að borða á Sjávarborg við höfnina um kvöldið.  Erfiðleikastig 4 af 10.

Dagur 3 - sunnudagur
Tökum saman pjönkur og keyrum 10 km að Laugarbakka og hjólum 30-40 km hring þar áður en haldið er heim á leið.  Erfiðleikastig 4 af 10.

Ferðirnar eru sumsé í léttari kanntinum og á allra færi sem á annað borð geta setið hnakk í klukkutíma í senn.

Hver og einn greiðir sinn útlagða kostnað, það kostar ekkert að taka þátt í þessari hjólaferð.  Ef einhver þarf far fyrir sig og hjólið sitt frá Höfuðborginni, þá kostar það 6000 kr pr mann fram og til baka.  Athugið að rafmagnshjól henta ekki á hvaða grind sem er, en venjuleg fjallahjól er auðvelt að ferja.

Ef þú vilt koma með, láttu umsjónaraðila vita, email This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. eða gsm 8239780.  Gott að vita fjöldann í tíma svo við getum skipulagt og pantað borð og áætlað grillið á föstudag.

Við höfum stofnað viðburð á Facebook, þar má nálgast frekari upplýsingar þegar nær dregur: https://www.facebook.com/events/1264622147406624/