Framundan er helgarferð um ægifagurt landsvæði. Lagt af stað laugardaginn 22 maí kl 11:00 frá Olís Bensínstöðinni við Norðlingaholt. Hjólað eftir Suðurlandsvegi, beygt inn á veg nr. 431, Hafravatnsveg. Þaðan farin Nesjavallaleið upp með Henglinum, niður að Þingvallavatni og áfram til Úlfljótsvatns, þar sem gist verður í góðum bústað með heitum potti. Leiðin er 50 km, að mestu á malbiki. Allar tegundir af reiðhjólum henta, nema racer. Rafmagnsreiðhjól gæti verið góður kostur.
Það verður sameiginleg máltíð á laugardagskvöldið. Fólk þarf að hafa með sér nesti til tveggja daga, Vatn fyrir daginn, drykkjarföng að eigin vali um kvöldið (enginn bar á svæðinu), rúmföt (lak, sængur og koddaver), tannbursta og sundföt. Fylgdarbíll tekur farangur og aðrar pjönkur, möguleiki á að fá aðstoð upp Hengilinn ef brekkurnar taka um of í.
Það er sjónvarp í bústaðnum og hægt að fylgjast með Eurovision keppninni sem er á laugardagskvöldið. Áfram Daði og Gagnamagnið.
Næsta dag er lagt af stað um hádegisbil og hjóluð sama leið til baka. Það er gistirými fyrir 8 manns, svo það þarf að bóka sig fyrirfram í ferðina. Sendið email á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. og tiltakið fjölda þáttakenda. Verð pr fullorðinn 8000 kr. Innifalið gisting, kvöldverður, hafragrautur í morgunmat og trúss á dóti.
Vinsamlega takið fram ef ferðalangur er á grænmetisfæði. Fararstjóri er Hrönn Harðardóttir, gsm: 823-9780
Erfiðleikastig 6 af 10. Áætlaðar dagleiðir 5-7 klst í austurátt, 4-6 í vestur.
Fólk er á eigin ábyrgð í ferðum Fjallahjólaklúbbsins.
Mynd: Geir Harðarson