Íslenska hjólakortið - Cycling and the independent traveler around Iceland 2019

Ný útgáfa af íslenska hjólakortinu er væntanleg 1. júní 2019. Kortið verður á ensku og dreift frítt í öllum betri hjólabúðum og upplýsingamiðstöðvum ferðamanna. Allt efni kortsins er svo aðgengilegt á www.cyclingiceland.is Þar verður meðal annars:

  • Hjólakort Íslands – sérupplýsingar um umferð, brekkur, hjólaþjónustu
  • Hjólakort höfuðborgarsvæðisins – helstu hjólaleiðir og þjónusta
  • Public Transport leiðakort (www.publictransport.is) – allar áætlunarleiðir landsins
  • Campsites & Huts – öll tjaldsvæði og fjallaskálar, sérupplýsingar fyrir hjólandi gesti
  • Gagnlegar upplýsingar: öryggi, tjaldreglur, ferðir með hjól í almenningssamgöngum o.fl.

Á nýja kortinu má meðal annars sjá allar einbreiðu brýrnar þar sem Vegagerðin mun lækka hámarkshraðann í 50 km. Einnig er sett inn tákn fyrir hvíldarstaði við þjóðvegina.

Höfundar eru Ómar Smári Kristinsson, Andreas Macrander, Nina Ivanova og Ingi Gunnar Jóhannsson. Ritstjóri er Sesselja Traustadóttir. Útgefandi er Hjólafærni á Íslandi.


Birtist fyrst í Hjólhestinum, mars 2019.