Aðalfundur Íslenska fjallahjólaklúbbsins sem átti að halda 15. október frestast vegna covid og verður ný dagsetning auglýst síðar.
Opið hús fellur niður á næstunni samkvæmt fyrirmælum stjórnvalda.
Þeir sem hafa áhuga á að bjóða sig fram í stórn klúbbsins geta haft samband í netfangið ifhk@
Stjórn félagsins er kjörin á aðalfundi til eins árs í senn. Stjórnina skipa 5 menn: Formaður, varaformaður, ritari, gjaldkeri og meðstjórnandi. Einnig skal kjósa endurskoðanda og formenn nefnda.
Ennfremur er auglýst eftir tillögum að lagabreytingum. Þær verða að berast stjórn ÍFHK amk. 14 dögum fyrir aðalfund.
Dagskrá aðalfundar:
- 1. Kosning fundarstjóra.
- 2. Skýrsla formanns.
- 3. Lagðir fram endurskoðaðir og áritaðir reikningar
-
4. Tillögur um breytingar á lögum klúbbsins. Sjá tillögur fyrir neðan.
- a. Allar tillögur um lagabreytingar verða að hafa borist stjórn amk. 14 dögum fyrir aðalfund
- b. Þær verða svo kynntar félagsmönnum fyrir aðalfund í tölvupósti.
- 5. Kosning formanns.
- 6. Kosning stjórnar og skoðunarmanna reikninga.
- 7. Nefndir mannaðar
- 8. Lögð fram tillaga að fjárhagsáætlun
- 9. Önnur mál.
Núgildandi lög ÍFHK má lesa hér: Lög ÍFHK
Lagabreytingartillögur:
Í vinnslu eru lagabreytingar til að samræma núverandi lög við kröfur Fyrirtækjaskrár.
Sjáumst á aðalfundinum,
Stjórn Íslenska fjallahjólaklúbbsins.