Kæru félagar. Nú líður að endurnýjun árgjalds en 2019 skírteinin gilda út mars. Við munum stofna kröfur 24 febrúar, en ef einhver hefur tök á að leggja beint inn á okkur fyrir þann tíma væri það frábært. Sparar okkur stofn- og greiðslugjöld krafna. Reikningur 0515-26-600691 og kennitala 600691-1399. 2500 fyrir einstakling, 3500 fyrir fjölskyldu.

Ef þið viljið tilkynna einhverjar breytingar, t.d. breytingar á fjölskylduáskrift, má gera það á felagatal@fjallahjolaklubburinn.is.

Við fáum heimilisföng sjálfkrafa úr þjóðskrá, svo það þarf ekki að tilkynna breytt heimilisföng.

Hjólhestum og skírteinum verður svo pakkað í Klúbbhúsinu 19 mars, það verður stofnaður viðburður þegar nær dregur. Öllu verður komið til félagsmanna fyrir mánaðarmótin mars/apríl.

-Stjórnin

 

Hjólhesturinn

Það fer að styttast í loka skilafrest á efni í fréttabréfið okkar Hjólhestinn en við miðum við næstu mánaðamót.

Það má skrifa um flest tengt hjólreiðum og ykkar reynslu og upplifunum á reiðhjólinu. Klúbburinn fagnaði 30 ára afmæli á síðasta ári og væri gaman að fá gamlar reynslusögur af fyrstu kynnum ykkar af klúbbnum, fyrstu ferðinni eða hvað eina.

Efni má senda á ifhk@fjallahjolaklubburinn eða sem svar við þessum pósti.

Ritstjórnin