Hvað þarf að gera til að hjólreiðar verði raunhæfur kostur fyrir þig?
Við þekkjum það öll að vera föst í viðjum vanans og finna okkur ýmsar ástæður til að viðhalda þeim. En er hægt að hafa áhrif á þig? Viltu skipta um gír? Hvaða hindrar þig í að gera hjólreiðar að lífsstíl þínum?

Formið batnar fljótt við hjólreiðar.

Hjólaðu  rólega í byrjun.
Veldu eigin hraða og taktu þér tíma.
Kannaðu umhverfi þitt og finndu hentugustu leiðirnar fyrir þig.
Líkamsástand þitt mun batna ef hjólreiðar verða hluti af lífsstílnum, kílóin hverfa í framhaldinu.
Hjólaðu í léttum gír upp brekkur og í miklum mótvindi og einbeittu þér að því að minnka álag á hnén.

Á 15 mín. nærðu að hjóla hálfa borgina.

Stuttar ferðir taka minni tíma á hjóli en bíl.
Ferðir sem eru 7-10 km taka álíka langan tíma á bíl og hjóli á annatímum innanbæjar.
Skoðaðu korterskortið , á 15 mínútum nærð þú að hjóla hálfa borgina.
Leitin að bílastæðum er úr sögunni, það sparar tíma.
Það er mjög skemmtilegt að taka fram úr bílaröðinni á háannatímum.

 

Korterskortið

 

Er leiðin svo löng?

Eftir því sem styrkur þinn eykst breytist hugarfar þitt gagnvart vegalengdum.
Prófaðu að hjóla í vinnuna og taka strætó heim á kvöldin.  Leyfilegt er að taka hjól með í suma vagna. Skipulegðu hjólreiðarnar í samhengi við almennings¬samgöngur.
Hjólaðu til vinnufélaga og verið samferða hluta leiðarinnar, það er gaman að hjóla með öðrum.

Góðir geymslustaðir leynast víða

Góðir geymslustaðir fyrir hjólið leynast víða, t.d. í kompu eða við svalir
Taktu hjólið inn ef mögulegt er.
Óskaðu formlega eftir því við atvinnurekanda að hann bæti geymslu¬aðstöðu fyrir reiðhjól.  Bætt heilsa starfsmanna  er allra hagur.
Notaðu tryggan lás til að læsa stellið við eitthvað.

 

Góðir geymslustaðir leynast víða

Hjólið mitt er gamalt

Vertu viss um að hjólið sé í góðu lagi áður en þú ferð af stað, þó sérstaklega bremsurnar.
Kannski þarf bara að stilla hjólið? Ef það bremsar illa, skiptir illa um gíra eða dekkið rekst í brettið með hávaða eru það smávægilegar viðgerðir.
Reiðhjól þurfa viðhald líkt og önnur farartæki. Farðu með hjólið þitt í viðgerð og láttu yfirfara það.
Lærðu að stilla hjólið þitt svo þér líði betur á hjólinu.
Sækja má upplýsingar um reiðhjóla¬viðhald á netið.
Farðu á viðgerðarnámskeið og lærðu að viðhalda hjólinu þínu.
Fáðu þér nýtt hjól. Það borgar sig fljótt upp í öðrum sparnaði.

Þarf sturtu eftir hverja hjólaferð?

Hjólaðu rólega í vinnuna svo að þú svitnir minna.
Þeir sem eru vanir að hjóla styttri leiðir ættu alls ekki að þurfa sturtu frekar en eftir gönguferð.
Skoðaðu hvort þú sért hugsanlega of mikið klædd/ur á hjólinu, það þarf lítinn fatnað meðan hjólað er.
Notið svitalyktareyði undir armana.
Hægt er að taka með sér þvottapoka í vinnuna.
Athugaðu hvort það er aðstaða annars staðar í húsinu sem þú getur fengið aðgang að.
Hjólaðu af meiri krafti heim og farðu  í sturtu á eftir.

 

Sturtu og búningsaðstaða

 

Ég þarf að vera uppáklædd/ur í vinnunni

Fáðu þér bögglabera og töskur undir föt.
Fáðu þér góðan bakpoka.
Hafðu nokkur sett af fötum og 1-2 skópör í vinnunni. Taktu skyrtur/boli og hrein undirföt daglega með þér.
Hafðu fötin með þér dags daglega, gott er að rúlla upp dröktum, skyrtum og jakkafötum í stað þess að brjóta saman.
Settu fötin í hreinsun í nágrenni við vinnustað þinn.

 

Hjólað í jakkafötum

 

Þarf ég sérstök hjólaföt

Notaðu þinn venjubundna klæðnað þegar veður og aðstæður leyfa.
Notaðu það sem þú átt í skápunum.
Notaðu venjulega skó.
Bolur og vindheldur jakki duga í flestum veðrum og gott ef loftar aðeins um líkamann.
Fötin og annar útbúnaður kemur smátt og smátt og endist lengi.

 

Ekki þörf á sérstökum hjólafötum

 

Veðrið og rigningin

Er veðrið svo slæmt þegar þú ert komin(n) út?
Reiknaðu með aðeins meiri tíma ef það er mótvindur.
Hjólaðu í léttum gír eins og þú værir að hjóla upp brekku.
Áttu ekki vatnshelda flík í fataskápnum? Ef ekki er kominn tími til að eignast hana.
Ef þú ert í vinnunni þegar byrjar að rigna og ekkert vatnshelt til staðar, taktu þá strætó heim eða fáðu far.
Njóttu þessa að þjóta heim, blotna á leiðinni og fara í þurrt heima.
Gerðu ráðstafanir til að mæta íslenskri veðráttu, til dæmis með því að hafa ætíð auðpakkanlegan hlífðarjakka  meðferðis.
Gerðu ráðstafanir til að vera sýnilegur. Notaðu ljós og annan búnað til vera sýnilegur í myrkri og lélegu skyggni.

 

 

Ég finn til óöryggis á götunum

Kynntu þér tækni Samgönguhjólreiða. Sú tækni kennir þér að takast á við umferðina í stað þess að hræðast hana.
Vertu sýnileg(ur) í umferðinni og taktu þitt pláss.
Fylgdu ávallt almennum umferðareglum.
Því fleiri hjólreiðamenn sem nota göturnar til samgangna því meira tillit fá þeir frá ökumönnum.
Hjólaðu á gangstéttum og stígum ef það eykur öryggis¬kennd þína.
Notaðu reiðhjólahjálm ef það eykur öryggiskennd þína.

 

 

Ég þarf að snúast í og eftir vinnu

Fáðu þér bögglabera og töskur á hjólið.
Skoðaðu einnig farangursvagna og barnakerrur.
Fáðu þér góðan lás til að geta læst hjólinu þínu með traustum hætti við eitthvað.
Ræddu við vinnuveitanda þinn og fáðu að ferðast um á hjólinu í vinnutíma.
Athugaðu hvort atvinnurekandinn vill útvega hjól sem starfsmenn geta notað til snúninga á vinnutíma.
Skipuleggðu vikuna. Notaðu bílinn einn dag í viku. Gerðu allar útréttingar þann dag og gerðu stórinnkaup í leiðinni.

 

Töskur og karfa

 

Það hjólar enginn á mínum vinnustað

Láttu það ekkert á þig fá og haltu þínu striki.
Þú þarft ekki að vera lengi einn á báti, áður en þú veist af ertu kominn með félagsskap.  Það er mikil hjólavakning núna og margir að hjóla allan ársins hring.

Hvað geri ég með ótal gíra?

Gírar auðvelda hjólreiðar, léttur gír gerir brekkur auðveldar og þungur gír gefur góðan hraða.
Stilltu keðjuna á miðtannhjólið að framan. Einbeittu þér að því að stilla afturtannhjólin í fyrstu.
    Litla tannhjólið að framan er fyrir brekkur, „lágt drif“ og er notað með þremur léttustu gírunum að aftan.
Stóra tannhjólið er fyrir hraða siglingu, „hátt drif“ og er notað með þremur þyngstu gírunum að aftan.
Fáanleg eru hjól með innbyggðum gírum. Fleiri gírar gera hjólreiðar auðveldari. 7 gírar og yfir duga í flest.

Hvað með þessar handbremsur?

Lærðu að treysta handbremsunum.
Hægri bremsan er að aftan, vinstri bremsan að framan. 
Bremsaðu bæði að framan og aftan
Aldrei bremsa bara að framan
Láttu skipta reglulega um bremsupúða.
Hjól með fótbremsum eru líka fáanleg.

Hvað geri ég í haust þegar fer að kólna?

Bætir á þig hlýrri flíkum og finnur góða vetrarskó.
Kaupir þér öflug ljós og lætur setja nagladekk undir.
Og hjólar svo líka um veturinn. Engir gluggar að skafa.

 


 

Hvað með mengunina?

Ökumenn anda að sér meiri mengun en hjólreiðamenn sem sitja ofar og lungu þeirra hreinsa sig vegna hreyfingarinnar öfugt við lungu bílstjóranna.

Konur og karlar eru ekki sköpuð eins!

Konur hafa styttri búk og lengri fótleggi en karlar.
Það má aðlaga karlahjól konum:
Breidd stýris má minnka í samræmi við breidd herða.
Setja stýrið á styttri og/eða hærri stýrisarm (stamma) ef stellingin á hjólinu er ekki nógu þægileg.
Skipta karlahnakkinum út með breiðari kvennahnakk.

 

 

Guðný Einarsdóttir og Páll Guðjónsson

Birtist fyrist í Hjólhestinum, fréttablaði ÍFHK, maí 2010.

Íslenski fjallahjólaklúbburinn,
Brekkustíg 2,
101 Reykjavík. 

 

Netfang: ifhk@fjallahjolaklubburinn.is
Kt. 600691-1399
Banki: 515-26-600691