Sjá! í hæðunum glampar og glitrar,
ganga? þar bardaga menn.
Sjá! þetta eru verur vitrar
vasklegir hjólreiðamenn.
Það glampar á hjálma og glitrar króm
gallharðir vöðvar við keðjuhljóm,
litríkust klæði, líflegt bros,
létt er lund við regn og vos.
Fylkingar streyma til fórna, við mál
fast skal berjast, fram skal sál.
Lífsmáta nýjan skal leiða á, þjóð
líkna þeim örmu á hjólreiða þingi,
setja þá aumu aftast í ljóð
umvafða í gjarðahringi,
keðjuhlekki til kvalræðis þeim
kolryðgaða með ískurhreim.
Læra skulu á lipur hjól,
Líflegt verður sálarrjól. 

Björn Finnsson