|
Hrafnseyrarheiði - Kvennaskarð |
|
|
|
Höfundur: Örlygur Steinn Sigurjónsson
|
|
þriðjudagur, 27 júlí 2010 |
Hrafnseyrarheiði - Kvennaskarð (hringur)
Vegalengd: 50 km
Upphafsreitur GPS 65 45 561N 23 27
044W
Möl 100%
Heildarhækkun: um 1000 m.
Ferðin hefst við Hrafnseyri í
Arnarfirði. Hjólað út með Arnarfirðinum fyrstu 16 km og þá beygt
til hægri, áleiðis upp í Kvennaskarð. Vegslóðinn er grófur á
köflum. Hjólað niður með Kirkjubólsá uns komið er á veg austan
Hofs. Þá tekin fyrsta beygja til hægri áleiðis að bænum Bakka,
í gegnum hlaðið og upp á þjóðveg, áleiðis suður á Hrafnseyrarheiði.
Neyðarskýli er efst á heiðinni (GPS 65 48 389N 23 26 075W). Leiðin
er krefjandi í heild, en felur í sér mikið niðurbrun að loknu
puði upp í Kvennaskarðið annarsvegar og Hrafnseyrarheiðina hinsvegar.
|