|
Fjölskyldu hjólaferð á Úlfljótsvatn 5-6. júní. |
|
|
|
Höfundur: Fjölnir Björgvinsson
|
|
miðvikudagur, 02 júní 2010 |
|
Lagt af stað frá Árbæjarsafni kl 10:00 laugardagsmorgun. Hjólað er til Úlfljósvatns um Nesjavallaleið. Gist á Úlfljótsvatni í tjöldum en hægt er að fá innigistingu á vægu verði en hana þarf að panta hjá Heiðari:
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
eða s: 898 0282. Farangur verður trússaður inneftir þannig að þetta er létt ferð og fjölskylduvæn.
Úlfljótsvatnshlaupið verður á laugardagsmorgninum og er öllum heimil þátttaka. Hlaupavegalengdin er um 25.km. Þannig að þeir sem vilja geta farið inneftir á föstudeginum og tekið þátt í hlaupinu og hjólað með hópnum til baka á sunnudeginum. bara hugmynd... Það er góður möguleiki að hjóla leiðina ef áhugi er fyrir því að hlaupinu loknu. Leiðin er stikuð.
Einnig er á staðnum lítið vatna-safary í líkingu við Wipaut, sem gaman er að þegar hlýtt er í veðri.
Nánari upplýsingar um svæðið á heimasíðu Úlfljótsvatns www.ulfljotsvatn.is
Nánari upplýsingar veitir Björgvin í síma:662 6440
Ferðanefnd.
|