Fræðsla = öryggi
Á vorin taka margir sig til og prófa hjólið sem samgöngutæki og skilja bílinn eftir heima. Ekki síst gerist það í vinnustaðakeppninni „Hjólað í vinnuna“. Þessi bæklingur er gefinn út til þess að hvetja fólk til hjólreiða og að fræða það um hvernig öruggast og þægilegast er að stunda hjólreiðar.
Sú tækni sem kennd er í kaflanum um samgönguhjólreiðar er ekki ný af nálinni heldur er hún viðurkennd og kennd víða um heim, þótt aðrir en LHM og ÍFHK hafi ekki sinnt þessari fræðslu með skipulögðum hætti á Íslandi hingað til.
Landssamtök hjólreiðamanna stóðu fyrir komu John Franklin á
samgönguviku 2007 en hann er einn helsti sérfræðingur Breta í
öryggismálum hjólreiðafólks og sérstakur ráðgjafi breskra stjórnvalda.
Þar hélt hann nokkur erindi sem hétu samgönguhjólreiðar og þversagnir í
öryggismálum hjólreiðafólks. Þessa fyrirlestra má lesa á heimasíðum ÍFHK
og LHM og eru þeir skyldulesning fyrir alla sem fjalla vilja um
hjólreiðar af einhverri þekkingu. Þar eru kveðnar niður mýtur um meintar
hættur hjólreiða með vísan í marktækar rannsóknir. Hjólreiðar eru
nefnilega ekki hættulegur ferðamáti heldur meinhollar, ódýrar og
umhverfisvænar.
John Franklin skrifaði bókina Cyclecraft sem m.a. er notuð við
kennslu í Hjólafærni sem nefnist Bikeability í Bretlandi. Aðeins
sérþjálfaðir kennarar fá að kenna Hjólafærni þar og er kennslunni skipt í
þrjú stig, fyrsta stigið er fyrir byrjendur á öllum aldri en annað og
þriðja stig fjalla um samgönguhjólreiðar á götum.
Landssamtök hjólreiðamanna fengu hjólafærnisérfræðing til landsins
árið 2008 sem þjálfaði nokkra Íslendinga eftir breska þjálfunarmódelinu
sem Hjólafærnikennara. Þar á meðal voru Árni Davíðsson, sem skrifar um
samgönguhjólreiðar í þessum bæklingi, og Sesselja Traustadóttir sem
býður upp á námskeið í Hjólafærni ásamt annarri þjónustu í gegnum vefinn
hjólafærni.is.
Það er von okkar að þessi bæklingur hjálpi sem flestum að tileinka
sér reiðhjólið sem samgöngutæki með þeim jákvæðu áhrifum sem sú hreyfing
hefur á heilsuna, umhverfið og budduna.
Stígum á sveif með lífinu
og skiljum kyrrsetulífernið eftir.
Páll Guðjónsson, ritstjóri.
Fjölnir Björgvinsson, formaður Íslenska fjallahjólaklúbbsins.
Árni Davíðsson, formaður Landsamtaka hjólreiðamanna.
Smellið á blaðið hér fyrir neðan til að sjá það stórt, annar smellur
stækkar það enn meir og með stiku efst er hægt að velja mestu stækkun.
Esc takkinn lokar blaðinu.
|