Hjólhesturinn 3. árg. 2. tbl. kom út í mars 1994. Það var fullt af
fróðleik, ferðasögum og pistlum sem hafa elst ótrúlega vel. Seinni hluta
ferðasögu Jóns Arnar og Þórðar má lesa hér
, myndskreytt af vanda af Jóni sem einnig teiknaði forsíðuna. Greinin um "undirbúning fyrir ferðalög á reiðhjóli" var
skyldulesning lengi á eftir.
Sérstaka athygli vekur leiðari blaðsins
þar sem farið er yfir skipulag samgangna á höfuðborgarsvæðinu. Greinin
hefur elst vel og því miður er fátt sem við getum sagt að
hafi náð fram að ganga af þessum stefnumálum síðan þetta var skrifað fyrir 15 árum. Þessi
skrif þóttu afar öfgafull á þeim tíma en endurspegla viðhorf sem æ
oftar heyrast í dag.
Smellið á blaðið hér fyrir neðan til að sjá það stórt, annar smellur stækkar það enn
meir og með stiku efst er hægt að velja mestu stækkun. Esc takkinn
lokar blaðinu. Páll Guðjónsson