Á Menningarnótt í Reykjavík 2009 mættust glaðir
hjólakappar kl. 15 á Miklatúni og rúlluðu þaðan saman á reiðhjólum sínum um bæinn. Fólk
var hvatt til að hjóla með bökin ber og skrifa á þau skemmtileg hjólaslagorð eða
að mæta í búningum eða skrautlegum fötum.
Hér má sjá glæsilegar myndir frá bræðrunum Magnúsi
Bergs og Jóni Erni Bergs
Frumkvæðið kom frá Bryndísi (Þóru) Þórisdóttur, og hún stóð sig með
prýði í samstarfinu við borgina þannig að þetta varð hluti af dagsskrá
Menningarnætur. Þetta var mikið til auglýst upp á Facebook og á
póstlista Fjallahjólaklúbbsins. Sjá nánar hér: http://tinyurl.com/hjolumberbakt ( Myndir sýnilegar etc ef maður er loggaður á Facebook)