Lög Íslenska fjallahjólaklúbbsins Prenta Rafpóstur
Nafn og aðsetur

1.grein: Félagið heitir Íslenski Fjallahjólaklúbburinn, skammstafað ÍFHK.

2.grein: ÍFHK eru sjálfstæð og óháð samtök.

3.grein: Póstfang er pósthólf 5193, 125 Reykjavík.

Markmið

4.grein: Markmið félagsins er að auka reiðhjólanotkun og vinna að bættri aðstöðu hjólreiðafólks til samgangna. ÍFHK stendur fyrir útgáfu- og fræðslustarfsemi til að kynna stefnu sína og markmið.

Rekstur ÍFHK

5.grein: Tekjur ÍFHK eru: 1. Félagsgjöld sem ákveðin eru á aðalfundi ár hvert. 2. Framlög frá stuðningsaðilum. 3. Aðrar tekjur

6. grein: Reikningsár félagssins er 1. september - 31 ágúst

7. grein: Hafi félagsmaður ekki greitt félagsgjald fyrir aðalfund, hefur hann ekki atkvæðisrétt á aðalfundi og er ekki kjörgengur í stjórn og nefndir. Við afgreiðslu atkvæða ber félagsmanni að sýna félagsskírteini. Falli greiðsla félagsgjalda niður í eitt ár hættir félagsmaður að fá fréttabréf félagsins. Tapist félagsskírteini ber félagsmanni að greiða hálft andvirði nýs skírteinis og skrá nafn sitt á það í votta viðurvist.

Stjórn og fundir

8. grein: Aðalfund félagsins skal halda í október ár hvert og skal hann boðaður með minnst 10 daga fyrirvara. Einstaklingar sem gengið hafa í ÍFHK fara með eitt atkvæði á fundinum.

9. grein: Stjórn félagsins skal kjörin á aðalfundi til eins árs í senn. Stjórnina skipa 5 menn: Formaður, varaformaður, ritari, gjaldkeri og meðstjórnandi. Einnig skal kjósa endurskoðanda og formenn nefnda.

10. grein: Stjórninni ber að gæta hagsmuna félagsins. Hún ber ábyrgð á eignum þess og boðar til funda. Stjórnarfundir skulu haldnir mánaðalega. Stjórnin getur enga fullnaðarákvörðun tekið, nema þrír stjórnarmenn séu henni fylgjandi. Stjórnin getur vikið mönnum úr félaginu álíti hún framkomu þeirra félaginu til vansa. Þó getur viðkomandi óskað þess að málið verði tekið fyrir á félagsfundi.

11. grein: Lögum þessum verður einungis breytt á aðalfundi félagsins með einföldum meirihluta greiddra atkvæða.

 
< Fyrri   Næsti >

Free Joomla Templates By Joomlashack