|
Ferðalög og vikulegar ferðir við allra hæfi |
|
|
|
Höfundur: Páll Guðjónsson
|
|
miðvikudagur, 01 apríl 2009 |
|
Klúbburinn er með opið hús fimmtudagskvöld frá kl 20:00. Þar gefst
kostur á að kynnast öðru fólki með svipuð áhugamál yfir kaffibolla og
tala um heima og geima, eða verða sér út um upplýsingar um
athyglisverðar hjólaleiðir, tæknileg málefni eða hvað eina tengt
hjólreiðum.
Í
klúbbhúsinu er að finna veglegt safn bóka og tímarita sem fjalla um
flest það er tengist málefnum hjólreiðamanna auk ferðamennsku og
umhverfismála. Þar kemst fólk í viðgerðaraðstöðu, meðlimum að
kostnaðarlausu. Því er það gullið tækifæri að yfirfara reiðhjólið og fá
tilsögn frá sér reyndara fólki. Það eru nefnilega ekki allir sem kunna
að skipta um dekk og bremsupúða eða stilla gíra. Hvað þá teina upp
gjarðir eða skipta um olíu í dempara
Dagskrá klúbbsins má skoða á dagatalinu þar sem við reynum að setja inn flesta stærri hjólatengda viðburði hjá öðrum líka, s.s. hjólakeppnir og fl.
Ferðir og fleira 2012 er í vinnslu þegar þetta er skrifað ef verður sett á dagatalið við fyrsta tækifæri þegar búið er að negla hana niður.
|