Fjallahjólaklúbburinn
og Landssamtök hjólreiðamanna hafa beitt sér fyrir því að hjólavísar yrðu málaðir
á nokkrar götur til að auka þægindi og öryggi hjólreiðamanna í umferðinni og nú
eru þeir komnir á Suðurgötu sunnan Hringbrautar og á Einarsnes. Við fögnum þeim ákaflega
og vonum að þeim verði vel tekið.
En hvað eru hjólavísar?
Tilraunir með ýmsar
útgáfur af hjólavísum byrjuðu fyrir um 10 árum og hafa síðan verið notaðir víða
um heim s.s. San Francisco og fleiri borgir í Bandaríkjunum, París Frakklandi, Brisbane Ástralíu,
Zurich Sviss og Buenos Aires Argentínu svo Reykjavík er í góðum félagsskap.
Hvaða gagn gera
hjólavísar?
Sumarið 2003 var
gerð rannsókn í San Francisco á gagnsemi hjólavísa og voru niðurstöðurnar
afgerandi. Þar sem hjólavísar voru á götum hélt hjólafólk sig 20 sm lengra frá
kyrrstæðum bifreiðum og var þannig í minni hættu á að lenda á bílhurð sem opnuð
væri óvænt. Þegar bifreiðar fóru fram úr minnkaði þetta bil niður í 10 cm en
bifreiðarnar sem fóru fram úr juku fjarlægð sína frá hjólreiðamanninum um yfir
60 sm. Ef enginn hjólreiðamaður var á ferð höfðu hjólavísarnir samt þau áhrif
að umferðin fór um 30 sm lengra frá kyrrstæðum bifreiðum sem eykur öryggi
þeirra sem fara í og úr þeim.
Hver voru
markmiðin?
Í könnuninni sem
vitnað er til voru nefnd fjögur markmið með hjólavísunum:
Að minna bílstjóra á að búast við
umferð hjólandi á götunni.
Að minna bílstjóra á að hjólreiðamenn
mega hjóla lengra til vinstri á akbrautum, jafnvel þó þeir teppi aðra
umferð.
Að upplýsa hjólreiðamenn um hvar best
er að staðsetja sig á götunni með hliðsjón af kantinum eða kyrrstæðum
bifreiðum til að auka öryggi sitt.
Að fjölga hjólreiðamönnum því mörgum
finnst betra að hjóla á sérmerktum götum.
En á að hjóla á
götunum?
Já, það er ein af
þversögnunum í öryggismálum hjólreiðafólks, öfugt við það sem margir halda þá
er í raun öruggara að hjóla á götum borgarinnar en stígum með blandaðri umferð
sem þverar götur við hver gatnamót. Rannsóknir á raunverulegum slysatölum víðsvegar
um heiminn sýna nefnilega að þeir sem hjóla eftir stígum og þvera götur eru í
margfalt meiri hættu en þeir sem deila akbrautunum með bílum og eru sýnileg
þar. Meðfram hraðbrautum borgarinnar mælum við samt með stígunum þar sem þeir
eru og höldum áfram að berjast fyrir þeim þar sem þá vantar.
Skoðið fleiri myndir hér og lesið um þversagnirnar í öryggismálum hjólreiðafólks hér .