|
Hvernig klekkja má á Kuldabola á eyrum og hnjám |
|
|
|
Höfundur: Pétur Magnússon
|
|
föstudagur, 28 maí 1999 |
Klekkjum á Kuldabola
Jæja elskurnar þá fara brátt í hönd þessir uppáhaldsmánuðir okkar hjólreiðamanna des.-mars. Oft er nú svo að Kuldaboli vill vera að narta í okkur á hinum ýmsu stöðum. Ég ætla því að nota hönnunarhornið í þetta skiptið til að sýna ykkur hvernig klekkja má á Kuldabola á eyrum og hnjám.
|
Efni:
Fleece (fæst t.d. í Vogue og Virku)
Þunnt vindhelt efni (fæst einnig í Vogue og Virku)
2 lítra kókflaska
Gamalt dagblað
Velcro- eða franskur rennilás.
Verkfæri:
Nál, tvinni, dúkahnífur, skæri og penni.
|
|
|
Settu hjálminn þinn upp. Troddu blaði undir böndin og yfir eyrun, strikaðu á blaðið til að fá út snið og stærð hlífana. Hlífin sjálf er úr tveimur lögum, fleece-efni innra og einhverju vindheldu efni ytra. Þegar þú ert búinn að sníða pjötlurnar tvær eftir blaðinu skaltu taka þér í hönd 2 lítra kókflösku og dúkahníf. Skerðu tvo stóra búta úr "öxlum" kókflöskunar og sníddu þá til þangað til þeir passa inn á milli pjatlanna. Saumið því næst pjötlurnar saman með plastinu og annan hluta Velcro-lássins inn í. Hinn hluta Velcro-lássins saumið þið í vindhelda efnið. Nú eigið þið að vera komin með hlíf sem er eilítið kúpt og heldur þannig betur að eyrunum og minnkar næðing. Athugið að láta efri hlutann á öxlum flöskunnar snúa niður í hlífinni.
|
|
|
Hnéhlífar.
Taktu hjólabuxurnar þínar og snúðu þeim á rönguna. Taktu þér dagblað í hönd strikaðu út fyrir efnisbút sem nær u.þ.b. frá þar sem stuttbuxunum sleppir fyrir ofan hnéð og vel niður á legg. Hægt er að gera þetta bæði að aftan og framan en mér hefur fundist nóg að gera þetta á framhlið buxnana. Fleece-efni hefur reynst mér vel í þetta. Saumaðu bútana síðan á. Ef buxurnar eru vatns- og vindheldar, passið ykkur þá að sauma ekki í "Tex" efnið. Óþarfi er að sauma þá mjög fast og vandlega, þú verður jú að geta náð þeim af með góðu móti í vor. Snúðu því næst buxunum á réttuna, farðu í þær og bjóddu Kuldabola birginn.
|
|
Með von um ófrosin eyru og heit hné!
Pétur Magnússon.
Teikningar Jón Örn Bergsson
©Hjólhesturinn.
|