|
Höfundur: Páll Guðjónsson
|
|
þriðjudagur, 30 ágúst 2011 |
|
Þessa dagana hjólar Daniel Hutton hringinn í kringum Ísland og safnar um leið fé til góðgerðarmála. Hann er frá Harrogate í Englandi og hefur stundað söng í yfir 27 ár eða frá átta ára aldri. Hann býðst til að syngja fyrir gistingu eða mat svo það ætti að ríkja mikil sönggleði hvert sem hann fer. Áhugasamir geta haft samband við hann og boðið gistingu. Hann er víst búinn með Snæfellsnesið og að nálgast Akureyri.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Höfundur: Páll Guðjónsson
|
|
sunnudagur, 21 ágúst 2011 |
|
Þeir eru ófáir sem taka sig til og skipuleggja hjólaleiðangra til að safna áheitum fyrir gott málefni. Einn slíkur leiðgangur er á ferð um landið þessa dagana. Það er stundum munur á ferðasögum þeirra sem ferðast sjálfum sér til ánægju og þeirra sem eru að safna áheitum. Það er skondið að lesa stórkallalegar lýsingar þessa hóps þar sem allt virðist á heljar þröm.
Þeir sáu ekki fyrir sér að geta skrúfað frá vatnskrana og fengið
drykkjarvatn hér við hringveginn ólíkt því sem tíðkast í heimalandi
þeirra. Hvað þá að geta keypt sér mat og virðast þau lifa á
frostþurrkuðum matarpökkum sem þeir höfðu meðferðis. Ferðin er farin
veturinn 2011 þ.e. núna frá 12. ágúst.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Höfundur: Páll Guðjónsson
|
|
þriðjudagur, 16 ágúst 2011 |
|
Helgina 13. - 14. ágúst var farið í fyrstu Landmannalaugaferðina á vegum ÍFHK í langan tíma. Náttúran er alltaf einstök á svæðinu og ekki skemmdi að hafa góðan meðvind megnið af leiðinni. Dalakofinn hafði stækkað töluvert fá síðustu ferð sem var á síðustu öld svo það fór vel um alla. En þó það sé búið að fjalla um ferðina í tveim öðrum pistlum er alltaf gaman að bera saman sjónarhorn manna og hér eru fleiri myndir úr ferðinni.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Höfundur: Hrönn Harðardóttir
|
|
þriðjudagur, 16 ágúst 2011 |
|
Það mátti sjá margan jeppakallinn snúa sig úr hálsliðnum síðastliðna helgi, en þá fór Fjallahjólaklúbburinn með nýju hjólakerruna sína jómfrúarferð upp í Landmannalaugar.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Höfundur: Örlygur Steinn
|
|
þriðjudagur, 16 ágúst 2011 |
|
Ferð ÍFHK um nýliðna
helgi, frá Landmannalaugum á Hellu, með viðkomu í Dalakofanum, norðan
Laufafells var fjölmenn og góðmenn. 18 þátttakendur voru í ferðinni sem
hófst í Laugum 13. ágúst kl. 14.
Hjólað var um Dómadal í blússandi
meðvindi og töluverðu öskufoki á köflum og áð í Landmannahelli. Þaðan lá
leiðin upp að Krakatindi og síðan upp í Rauðufossafjöll uns komið var í
Dalakofann um kvöldið, eftir rúmlega fimm tíma ferð, nokkuð krefjandi á
köflum.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Höfundur: Hrönn Harðardóttir
|
|
mánudagur, 15 ágúst 2011 |
|
Fjallahjólaklúbburinn hefur verið með ferðir á þriðjudagskvöldum í sumar og svo verður áfram út ágúst. Lagt er af stað frá Fjölskyldu og Húsdýragarðinum, aðalinngangi kl 19:30. Hraða er stillt í hóf og ekki er ákveðið fyrir fram hvert skuli farið, heldur ræðst för af formi, óskum og uppástungum þátttakenda.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Höfundur: Hrönn Harðardóttir
|
|
þriðjudagur, 28 júní 2011 |
|
Fjallahjólaklúbburinn fer öll þriðjudagskvöld frá Fjölskyldu og Húsdýragarðinum kl 19:30, og eitt kvöldið var farið út í Viðey og hjólað um eyjuna.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Höfundur: Hrönn Harðardóttir
|
|
sunnudagur, 19 júní 2011 |
|
Helgi hinna miklu sprenginga. Það byrjaði með því að ég staflaði dótinu
mínu út úr bílnum á tjaldstæðinu á Arnarstapa, ætlaði að fá mér mjúkt
sæti, sængin mín og koddarnir þrír voru allir með í för ofan í svörtum
ruslapoka. Pokinn sprakk með ægilegum gný og vakti þá sem höfðu farið
snemma í háttinn.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Höfundur: Stefán Sverrisson
|
|
miðvikudagur, 13 apríl 2011 |
|
Ég var staddur á æskuslóðum mínum, á Melum í Svarfaðardal. Ég var fullur
eftirvæntingar því að loksins ætlaði ég að fara í ferðina sem ég var
búinn að hugsa um svo lengi, að hjóla yfir Heljardalsheiði.
Heljardalsheiði var helsta samgönguæð milli Eyjafjarðar og Skagafjarðar
áður fyrr, áður en akvegur var lagður yfir Öxnadalsheiði. Akvegur hefur
aldrei verið lagður yfir Heljardalsheiði en vegslóði var gerður yfir
heiðina á níunda áratug seinustu aldar, sem er orðinn frekar torfær í
dag.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Höfundur: Svanur Þorsteinsson
|
|
þriðjudagur, 12 apríl 2011 |
|
Undirritaður hafði gengið með þá hugmynd að hjóla upp með Hvítá að
austanverðu í Kerlingafjöll og þaðan austur að Þjórsá og niður í
Þjórsárdal. En það vantaði einhvern til þess að fara með. Síðastliðinn
vetur kom vinur minn og fyrrverandi vinnufélagi að máli við mig og
spurði hvort ég hefði ennþá áhuga á þessari hjólaferð. Kvað ég svo vera
og sagðist hann einnig hafa áhuga á að hjóla þessa leið. Síðar bættist
vinnufélagi í hópinn, en af persónulegum ástæðum gat hann ekki farið í
ferðina þegar til kom, en bauðst til að skutla okkur á byrjunarstað. Við
settumst niður til að spekúlera í þessu og ákváðum að fara 14. júlí og
áætla 5 daga í ferðina. Undirbúningur hófst með því að æfa sig í
hjólreiðum og byggja upp þol. Við settum niður GPS punkta af leiðinni
sem við tókum af Íslandskorti á ja.is sem síðar reyndust ekki vera mjög
nákvæmir.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
|
| Greinar 1 - 10 af 124 |