|
Höfundur: Páll Guðjónsson
|
|
miðvikudagur, 25 ágúst 2010 |
|
Hjóla Hrönn hjólaði um bæinn með bert bak á Menningarnótt ásamt
nokkrum tugum annara.
Hún skar sig úr í flottu öryggisvesti sem hún
saumaði sjálf. Hún er líka með skemmtilegt blog þar sem hún birtir
myndir sínar og myndbönd.
Kíkið á myndbandið sem hún tók á Menningarnótt, myndirnar sem bróðir hennar tók og fylgist með blogginu hennar.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Höfundur: Páll Guðjónsson
|
|
sunnudagur, 22 ágúst 2010 |
|
Á Menningarnótt stóðu Bryndís Þórisdóttir og Morten Lange fyrir fjörugri hjólalest frá Klambratúni og um miðborgina undir yfirskriftinni Berbakt um bæinn.
World Naked Bike Ride hreyfingin stendur fyrir fáklæddum hjólalestum víða um heiminn og þangað má rekja innblásturinn að þessum viðburð þó eitthvað sé nektin minni. Sumir klæddu sig í anda Cycle Chic og komu klæddir flottum fötum, litasamhæfð með hönskum og öllu. Ein hafði sérsaumað grænt öryggisvesti með endurskyni.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Höfundur: Sesselja Traustadóttir
|
|
mánudagur, 03 maí 2010 |
|
8788492 og losa! Búin að kaupa sólarhringsleigukort að og
París er mín. Svona einfalt er að ferðast um París fyrir 1 evru á dag.
Við sannreyndum það mæðgur á ferð okkar um borgina á dögunum. Fyrir
þessa einu evru vorum við með afnot af Velib’ hjóli í sólarhring og
komumst á einkar ánægjulegan hátt um alla borgina.
Stöðvarnar liggja þétt og við höfðum hvert hjól í 30 mín. í senn. Utan
við húsið okkar í hverfi 9 voru 28 m í næstu hjólastöð. Þar biðu þau
eftir okkur; u.þ.b. 20 hjól í röð sem við gátum valið á milli. Ég valdi
alltaf hjól sem var með heilleg handföng og virtist í góðu standi.
Einstaka sinnum mátti sjá hjól með slitna keðju eða laskað að öðru
leyti. Hins vegar er líklegt að þau hafi verið fljótlega fjarlægð af
starfsmönnum JCDecaux og einkennandi var hversu heilleg flest hjólin
voru.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Höfundur: Jóhannes Andri Kjartansson
|
|
sunnudagur, 02 maí 2010 |
|
Síðan ég var unglingur og gekk Laugaveginn svokallaða hefur mig alltaf
langað til að hjóla þessa leið en aldrei látið af því verða fyrr en
nýlega. Í september 2008 ákvað ég ásamt tveimur vinnufélögum, þeim
Ásmundi og Davíð, að hjóla þessa leið áður en veturinn gengi í garð.
Ætlunin var að hjóla í einni lotu þessa 55 km með stuttum stoppum í þeim
fjórum skálum sem eru á leiðinni og vonandi ekki vera lengur en 12-14
klst niður í Langadal, Þórsmörk.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Höfundur: Stefan Sverrisson
|
|
laugardagur, 01 maí 2010 |
|
Ferðamenn: Stefán Birnir Sverrisson
Dagsetning 29.7.2008
Vegalengd: 50 km
Mesta hæð: 621 m
Hjól: Mongoose-fjallahjól með framdempara, leigt á Ísafirði
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Höfundur: Ormur Arnarson
|
|
þriðjudagur, 20 apríl 2010 |
|
Costa Blanca strandlengjan hefur löngum verið Íslendingum kunn. Margir
hafa farið þangað í sólarlandaferðir til að flatmaga á ströndinni á
daginn og djamma á diskótekunum á kvöldin. Flestir fara eflaust á
klassíska túristastaði eins og Benidorm en færri hafa e.t.v. kannað
baklandið betur.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Höfundur: Úrsúla Jünemann
|
|
þriðjudagur, 20 apríl 2010 |
|
Þegar ég flutti til Íslands frá Þýskalandi árið 1981 var hér á landi
ekkert „góðæri“. Ég varð að taka hvaða láglaunastarf sem var í boði enda
mállaus á íslensku. Maðurinn minn var að reyna að ljúka námi og vann
íhlaupastörf eins og ég. Ég man eftir því þegar við fengum útborgað í
fyrsta skipti og við vorum að velta fyrir okkur hvað við ættum að gera
við afgangs peningana. Við tókum ákvörðun að kaupa okkur reiðhjól. Það
voru gleðistundir þegar við gátum hjólað allra okkar ferðir í staðinn
fyrir að ganga eða taka strætó, algjört frelsi.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Höfundur: Hrönn Harðardóttir
|
|
fimmtudagur, 03 desember 2009 |
|
Er ekki haustið tíminn til að skríða upp í sófa með kakó, teppi og góða bók? Vissulega en það er líka góður tími til að pakka niður nesti og regngallanum og fara út að hjóla. Haustlitirnir eru ægifagrir um þessar mundir og náttúran skartar sínu fegursta. Ég valdi því óvissuhaustferð Fjallahjólaklúbbsins fram yfir sófalegu helgina 12.-13. september. Ég vissi að hjóla ætti u.þ.b. 40 kílómetra í svefnstað og til baka, að gista ætti á svefnlofti og að svefnpokanum og farangrinum yrði ekið í skála. Það eina sem ég þurfti að taka með var nesti fyrir daginn, hlý föt, regnföt, pumpu og bætur auk viðgerðasetts.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Höfundur: Halla Magnúsdóttir
|
|
miðvikudagur, 04 nóvember 2009 |
|
Það var um verslunarmannahelgina 2008 sem undirrituð ásamt eiginmanni, 14 ára syni og fjögurra manna vinafjölskyldu okkar, fórum í ferðalag um Vestfirði og ákváðum að taka hjólin okkar með. Við höfðum hjólað talsvert mikið saman þetta sumar en nú var komið að því að nema ný hjólalönd og finna skemmtilega spotta á Vestfjörðum til að hjóla. Segir þó fátt af hjólreiðum okkar fyrr en við komum í Dýrafjörð og komið var að annarri eða þriðju gistinótt í ferðinni en þá ákváðum við að tjalda í botni fjarðarins við Botnsá.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Höfundur: Örlygur Steinn Sigurjónsson
|
|
miðvikudagur, 04 nóvember 2009 |
|
Ég fann hvernig tárin hrukku af hvörmunum og vindurinn gnauðaði fyrir eyrunum á 45 km hraða niður af Herðubreiðarhálsinum. Sumri var tekið að halla og síðustu gönguhrólfarnir víðast hvar að renna út af hálendisbrúninni þetta árið. En hér var ég á fleygiferð á fjallahjóli ásamt þrjátíu 9. bekkingum úr Smáraskóla, í blábyrjun september 2009.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 Næsta > Síðasta >>
|
| Greinar 1 - 10 af 63 |