Fréttir
Nýir afslættir til félagsmanna Prenta Rafpóstur
Höfundur: Páll Guðjónsson   
miðvikudagur, 01 febrúar 2012

Við erum að fara yfir afslætti sem félagsmenn fá gegn framvísun félagsskírteinis og voru tvö ný fyrirtæki að slást í hópinn. Tri og Mataskur

Lesa meira...
 
Efni óskast í fréttabréfið Prenta Rafpóstur
Höfundur: Páll Guðjónsson   
föstudagur, 27 janúar 2012

Hjólhesturinn Við minnum á að það er laust pláss fyrir ferðasögur, reynslusögur og ýmisskonar pistla. Þetta verður hefðbundið fréttabréf en ekki „Hjólreiðabæklingur fullur af dönskum dömum“ eins og einhver komst að orði um sérútgáfunar í fyrra og 2010.

Það væri gaman að heyra frá einhverjum sem byrjaði nýlega að nota hjólið sem samgöngutæki, hugsanlega eftir innblástur úr Hjólreiðabæklingunum sem við höfum dreift samhliða Hjólað í vinnuna keppninni síðustu tvö vor.

Það má líka fjalla um ferð með klúbbnum eða aðrar skemmtielgar hjólaferðir.

Skilafrestur á efni er út mánuðinn. Þó væri gott að heyra sem fyrst frá þeim sem eru með efni í undirbúning. Hver síða rúmar 6-700 orð / 3200-3500 slög en minna með myndum. - Það er skemmtilegra að hafa myndir með og reynum við að hafa amk. eina flotta opnumynd ef að líkum lætur. Eldri Hjólhesta má lesa hér..

Einnig vantar okkur aðstoð við að afla auglýsinga til að fjármagna blaðið.

Ritnefnd Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það

 
Stefna borgarinnar í hjólreiðamálum rædd Prenta Rafpóstur
Höfundur: Húsanefnd   
þriðjudagur, 24 janúar 2012

rvk-hjolavisarJHJ_044cr.jpg Fimmtudaginn 26. jan verður opið hús þar sem góðir gestir frá Reykjavíkurborg mæta og hafa framsögu um hjólreiðar í borginni. Þetta eru Karl Sigurðsson formaður umhverfis- og samgönguráðs, og varaformaður ráðsins, Kristín Soffía Jónsdóttir. Þau ræða stefnu borgarinnar í hjólreiðamálum og hvernig þau sjá fyrir sér framtíðarskipulag samgöngumála þar sem saman fara ólíkir samgöngumátar. Og sitthvað um snjómoksturinn góða.  Við vonumst til að sjá sem flesta og nú er tækifærið til að spyrja fulltrúana út í málin.

Af þessu tilefni má minna á að hlusta má á framsögu og horfa á glærur Dags B. á ráðstefnu LHM síðasta haust þar sem hann kynnti ýmisar nýjar áherslur hjá Reykjavíkurborg. Allar glærur og hljóðupptökur má nálgast hér áf vef Landsamtakanna: Hjólum til framtíðar, ráðstefna um eflingu hjólreiða til samgangna 

 
Dagskráin fram á sumar Prenta Rafpóstur
Höfundur: Húsnefnd   
miðvikudagur, 18 janúar 2012

Húsnefndin er búin að taka saman dagskrá fyrir klúbbhúsið okkar og verður ýmislegt nýtt í bland við sígild myndakvöld, námskeið og kaffihúsakvöld.

Dagskráin er komin á dagatalið okkar ásamt vikulegum hjólaferðum LHM frá Hlemmi þar sem allir fá leiðsögn í tækni samgönguhjólreiða.

Lesa meira...
 
Ný gögn frá Reykjavíkurborg um snjómokstur verða til sýnis og umræðu 12/ 01 Prenta Rafpóstur
Höfundur: Húsnefnd   
fimmtudagur, 12 janúar 2012

Góðan daginn.

Minni á opið hús í kvöld. Ný gögn frá Reykjavíkurborg um snjómokstur verða til sýnis og umræðu. Við getum kallað þetta undirbúning fyrir heimsókn til okkar frá fulltrúa borgarinnar sem verður auglýst síðar. Allir áhugamenn um málefnið eru hvattir til að mæta. Sem fyrr er viðgerðaraðstaðan opin og kaffi og meðþví á baðstofuloftinu.

Húsnefnd

 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 Næsta > Síðasta >>

Greinar 1 - 45 af 279

Free Joomla Templates By Joomlashack