|
Íslenskar fréttaveitur |
|
Hjólaðu maður!
|
Just another WordPress.com weblog
|
|
-
Hugleiðingar hjólreiðamanns um Umferðarstofu og lögregluna
Hlutverk lögreglu á Íslandi (skv. 2. grein lögreglulaganna) er m.a. að gæta almannaöryggis og koma í veg fyrir athafnir sem raska öryggi borgaranna. Hlutverk Umferðarstofu er m.a. (skv. heimasíðu hennar) ?að auka lífsgæði fólks með því að efla öryggi í umferðinni.? Markmiðið með því að auka öryggi í umferðinni er augljóslega að minnka heilsutjón vegfarenda. [...]
-
Afhverju hjóla Stokkhólmsbúar?
Hér er grein um könnun meðal hjólreiðmanna í Stokkhólmi þar sem þeir nefna helstu ástæður fyrir því að þeir hjóla. 9 af hverjum 10 nefna hreyfingu 8 af hverjum 10 nefna tímasparnað 7 af hverjum 10 nefna umhverfissjónarmið Mér finnst merkilegt hversu margir nefna tímasparnað. Ég held að fáir hjólreiðamenn á Íslandi spari tíma á [...]
-
Pappahjálmar!
Reiðhjólahjálmar úr bylgjupappa! Afhverju ekki? Anirudha Rao, hönnunarnemi frá London, hefur hannað reiðhjólahjálm úr bylgjupappa og kallar hann Kranium. Pappinn er vatns- og svitaheldur. Hjálmurinn uppfyllir EN 1078 staðalinn fyrir hjólabretta-, hjólaskauta- og hjólahjálma (sem er reyndar hálfgerður “drasl staðall” þegar kemur að reiðhjólahjálmum til notkunar í umferðinni, þó að mati Kiwanisklúbbsins sé hann fullgóður [...]
-
Fjallahjólabrautin í Kjarnaskógi
Takk! Þeir sem lögðu þessa frábæru fjallahjólabraut eiga skilið af fá miklar þakkir frá okkur sem notum hana. Þetta er alveg hreint magnað framtak og það sést að hún hefur kostað mikinn svita, blóð og tár. Mér skilst að stór hluti vinnunnar hafi verið sjálfboðavinna fjallahjólamanna sjálfra. Ég kann ekki að nefna þá alla, en [...]
-
Reiðhjólauppboð
Uppboð á reiðhjólum úr óskilamunadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu verður haldið þann 11. júní kl 11:00 að Askalind 2a, Kópavogi. Á uppboðinu verða boðin upp reiðhjól og barnavagnar sem eru í mismunandi ástandi. Hér eru smá ráðleggingar við kaup á notuðum hjólum, m.a. hvernig ætti að haga sér á reiðhjólauppboðum.
|
|