|
Af erlendum síðum |
|
Vísir - Innlent
|
Fréttir: Innlent á Vísir.is. Endurbirting óheimil, nema til einkanota
|
|
-
Kona réðist að öryggisverði í verslun 10-11
Kona í annarlegu ástandi réðst að öryggisverði í verslun 10-11 við Barónstíg á öðrum tímanum í nótt, þar sem hann hafði afskipti af henni vegna þjófnaðar.
-
Nemendur fengu allir spjaldtölvur
Danska sveitarfélagið Odder spjaldtölvuvæddi alla grunnskólanema og kennara. Kennslubækurnar settar beint inn á tölvurnar frá forlögum. Nemendurnir himinlifandi. Kennararnir segja þá einbeittari.
-
Á bílskúr fullan af kubbum
Smiðurinn Guttormur Þorfinnsson er ásamt fleirum að setja upp ævintýraland úr legókubbum í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur. Efniviðurinn, þúsundir og aftur þúsundir legókubba, er allur í eigu Guttorms og fjölskyldu hans og fyllir sextíu þrjátíu lítra kassa
-
Dreamliner æfir flugtök í hliðarvindi á Keflavíkurflugvelli
Boeing 787 Dreamliner farþegaþota kom til Keflavíkur til að æfa lendingar og flugtök í hliðarvindi og má segja að áhöfnin hafi hitt á óskastund í rokinu á Keflavíkurflugvelli í gær.
-
Jarðskjálftahrina við Grímsey
Jarðskjálftahrina varð norðaustur af Grímsey um fjögur leitið í gær þegar þar urðu þrír skjálftar upp á 2 til 2,3 á Richter með skömmu millibili.
-
Þyrla sótti veikan 14 mánaða dreng til Vestmanneyja
Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti í gærkvöldi 14 mánaða veikan dreng til Vestmannaeyja og var hann fluttur á barnaspítala Hringsins.
-
Segir ærumissi ekki skýra meiðyrðamál
Meiðyrðamál Jóns Ásgeirs Jóhannessonar gegn Birni Bjarnasyni er tilraun til að koma höggi á Björn að mati verjanda hans. Alvarleg ærumeiðing að segja Jón Ásgeir dæmdan fyrir fjárdrátt en ekki bókhaldsbrot segir lögmaður hans.
-
Fyrir þá sem eru þreyttir á spillingu
„Samstaða á að höfða til kjósenda sem hafa fengið nóg af spillingunni í samfélaginu og hafa fengið nóg af misskiptingunni á milli þeirra sem eiga og hinna sem skulda.
-
Reykjanesbrautin nú ein öruggasta leiðin
Hættulegasti vegur landsins er leiðin milli Neskaupstaðar og Stöðvarfjarðar sem meðal annars liggur í gegnum Oddskarð. Þetta kemur fram í rannsókn sem birtist í Læknablaðinu nýverið.
-
Páll Óskar vill að Ísland taki ekki þátt í Eurovision
"Ég hef nú þegar hvatt Pál Magnússon til að afþakka þátttöku Íslands í Eurovision í Bakú. Ég vona að hann geri það og taki þessari áskorun minni.
-
Skilin eftir úti í nístingskulda með feldinn frosinn við stéttina
Yfirvöldum hefur borist fjöldi ábendinga vegna illrar meðferðar á hundstík á heimili í Kópavogi, en ekkert hefur verið aðhafst. Þegar verst lét var tíkin skilin eftir úti í nístingskulda með feldinn frosinn við gangstéttina.
-
Samstaða á Patreksfirði: "Við munum ekki breyta um nafn"
"Það kemur svolítið á óvart að hún skuli velja akkúrat þetta nafn án þess að hafa samband við okkur. Ég fékk bara tölvupóst áðan frá félaga mínum sem sagði mér frá þessu,“ segir Haukur Már Sigurðsson, formaður Samstöðu á Patreksfirði.
-
Næstu kosningar snúast um trúverðuleika til að framfylgja loforðunum
Nýtt stjórnmálaafl, Samstaða, var kynnt til sögunnar í dag. Formaður flokksins er Lilja Mósesdóttir fyrrverandi þingmaður Vinstri grænna.
-
Lyfjameðferðin kostar 40 milljónir á ári
Ungur maður byrjar á árinu í lyfjameðferð á Landspítalanum sem kostar um fjörtíu milljónir á ári. Um er að ræða dýrustu einstöku lyfjameðferð sem að spítalinn hefur veitt. Óttast er að skera þurfi niður lyfjameðferðir vegna kostnaðar.
-
Voru um tíma trúlofuð
Maður á þrítugsaldri, sem grunaður er um manndráp í Hafnarfirði, var í dag úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald. Hann var um tíma trúlofaður konunni sem hann er talinn hafa orðið að bana. Hún lætur eftir sig tæplega tvítugan son.
|
|