Af erlendum síðum
mbl.is - Íþróttir
Fréttir úr íþróttaheiminum á mbl.is.

Morgunblaðið á Netinu
  • HK á toppinn með sigri á Þrótti
    HK er komið í efsta sætið í úrvalsdeild karla í blaki, Mikasadeildinni, eftir útisigur á Þrótti úr Reykavík, 3:1, í gærkvöld.

  • Djokovic og Cheruiyot fengu Laureus-verðlaunin
    Novak Djokovic, tennisleikarinn frá Serbíu, og Vivian Cheruiyot, langhlauparinn frá Kenía, fengu hinar árlegu Laureus-viðurkenningar sem besta íþróttafólkið í karla- og kvennaflokki þegar þær voru afhentar í London í fyrrakvöld.

  • Ævar: Erum eiginlega komnir í lykilstöðu
    Ævar Þór Björnsson, markvörður SR, átti góðan leik þegar SR sigraði Björninn 5:3 í Skautahöllinni í Laugardal í kvöld og kom sér í góða stöðu í deildinni.

  • SR sigraði Björninn í fjörugum leik
    SR og Björninn áttust við á Íslandsmóti karla í íshokkí í Skautahöllinni í Laugardal klukkan 20:15. SR sigraði 5:3 eftir að hafa lent 2:3 undir fyrir síðusta leikhlutann. Annar sigur SR á Birninum á skömmum tíma. Fylgst var með gangi mála hér á mbl.is.

  • Aðalheiður keppir í Aserbaídsjan
    Aðalheiður Rósa Harðardóttir, landsliðskona í karate úr Breiðabliki, er farin til Aserbaídsjan en þar keppir hún á Evrópumeistaramótinu fyrir 21-árs og yngri sem hefst í Baku á föstudaginn.

  • Dýrt að fara á Ólympíuleikana
    Hætt er við að margir gefi upp á bátinn að fara til London í sumar og fylgjast með keppni á Ólympíuleikunum sem þar fara fram frá síðari hluta júlí og fram undir miðjan ágúst. Verðlag í borginni er hátt og að sögn forsvarsmanns danskrar ferðaskrifstofu virðist ljóst að verðið muni fremur hækka en lækka þegar nær dregur leikunum.

  • Þormóður tapaði fyrir heimamanni í París
    Þormóður Árni Jónsson, júdókappi úr Júdófélagi Reykjavíkur, tók þátt í sterku alþjóðlegu móti í París um helgina. Þormóður varð að sætta sig við að falla úr keppni strax í fyrstu umferð en hann mætti heimamanninum Mathieu Thorel.

  • Contador í tveggja ára bann
    Spænski hjólareiðakappinn, Alberto Contador, var í morgun dæmdur í tveggja ára keppnisbann af æðsta dómstól spænska hjólreiðasambandsins vegna notkunar á ólöglegum lyfjum. Hann hefur einnig verið sviptur sigrinum í Frakklandshjólreiðunum árið 2010.

  • ÍR í 20. sætinu á Spáni
    Sveit ÍR hafnaði í 20. sæti í Evrópukeppni félagsliða í víðavangshlaupi, af 21 þátttökuliði, en keppnin fór fram í Valencia á Spáni í gær.

  • „Þrautin mikilvægari“
    Meistaramót 15 – 22 ára í frjálsum íþróttum fór fram um helgina í frjálsíþróttahöllinni í Laugardalnum. Engin aldursflokkamet féllu en keppt var í fjórum flokkum, 15 ára, 16-17 ára, 18-19 ára og 20-22 ára.

  • Giants hreppti Ofurskálina
    New York Giants lagði New England Patriots að velli, 21:17, í úrslitaleiknum um Ofurskálina í bandaríska ruðningnum sem fram fór í Indianapolis í nótt.

  • TBR A-landsliðið Deildameistari - BH-K vann A-deildina
    Keppni í Deildakeppni Badmintonsambands Íslands lauk í dag en þar hafði TBR A-landsliðið sigur í meistaradeildinni með fullt hús stiga. A-landsliðið vann í öllum sínum viðureignum og var fyrir ofan TBR-Öllara 1 sem hafnaði í 2. sæti.

  • BH Keppnis meistarar í B-deild
    TBR-Hrafnarnir, TBR-Þrumuguðirnir og BH-Keppnis öttu kappi í riðli um 1. - 3. sætið í B-deild í úrslitakeppni deildakeppni Badmintonsambands Íslands. BH Keppnis stóðu uppi sem sigurvegarar og eru því Íslandsmeistarar liða í B-deild.

  • Þróttur lenti 2:0 undir en vann
    Þróttur Reykjavík vann í dag 3:2-sigur á Ými í hörkuleik í Kópavogi í Mikasadeild kvenna í blaki. Ýmir vann fyrstu tvær hrinur leiksins en gestirnir náðu að snúa leiknum sér í vil.

  • Helga Margrét bætti Íslandsmetið
    Helga Margrét Þorsteinsdóttir úr Ármanni bætti í dag Íslandsmet sitt í fimmtarþraut innanhúss á alþjóðlegu móti í Tallinn í Eistlandi. Hún hlaut samtals 4.298 stig en fyrra met hennar var 4.205 stig frá árinu 2010.



Free Joomla Templates By Joomlashack