|
Íslenskar fréttaveitur |
|
mbl.is - Erlendar fréttir
|
Erlendar fréttir á mbl.is.
|
|
-
Fær bara leiðinlega tölvupósta
Barack Obama, Bandaríkjaforseti, barðist hart fyrir því að fá að hafa áfram BlackBerry farsíma þegar hann tók við forsetaembætti. Nú hafa ekki nema tíu manns heimild til að senda tölvupóst í pósthólf símans sem er girt öryggisvörnum í bak og fyrir. Forsetinn viðurkenndi í dag að það væri ekki gaman.
-
Hitamet féll í Moskvu í dag
Hitamet, sem sett var í Moskvu í byrjun vikunnar, 37,2°C, stóð ekki lengi því í dag komst hitinn upp í 38,2°C. Hefur aldrei mælst meiri hiti í höfuðborg Rússlands frá því skipulegar mælingar hófust fyrir 150 árum.
-
Obama boðar til herráðsfundar
Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, hefur boðað þá sem eiga sæti í afganska herráðinu á sinn fund í Hvíta húsinu, en þetta er fyrsti fundur ráðsins frá því leyniskjölum um stríðsrekstur Bandaríkjahers í Afganistan var lekið á Wikileaks.
-
Rússar helga kristnitökudag
Rússar fengu nýjan almennan frídag í gær þegar dagurinn var helgaður kristnitöku þar um slóðir árið 988. Þykir þetta til marks um stuðning stjórnvalda í Kreml við Réttrúnaðarkirkjuna, en vegur hennar hefur vaxið mjög eftir fall kommúnismans.
-
140 drukknuðu í Kongó
Óttast er að um 140 manns hafi drukknað þegar farþegabát hvolfdi á Kasaiá í Lýðveldinu Kongó í dag. AFP fréttastofan hefur eftir heimamönnum, að tveimur börnum hafi verið bjargað úr ánni en óttast sé að aðrir um borð hafi látið lífið.
-
Komu í veg fyrir flugrán
Rússneskir sérsveitarmenn komu í dag í veg fyrir, farþega um borð í flugvél, sem kom til Moskvu frá Kákasus tækist að ræna vélinni.
-
Friðarviðræður Araba og Ísraela
Arabískir embættismenn samþykktu í meginatriðum í dag að taka þátt í beinum friðarviðræðum við Ísrael um málefni Miðausturlanda. Þeir fólu Mahmud Abbas, forseta Palestínumanna, að ákveða. Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, kveðst reiðubúinn til viðræðna við Araba.
-
Ísbjörn réðist á ferðamenn á Svalbarða
Ferðamaður á Svalbarða skaut og drap ísbjörn, sem hafði ruðst inn í tjald og dregið annan mann út.
-
Mikið tjón í flóðum í Kína
Gríðarlegt tjón hefur orðið í flóðum í Kína, en spáð er áframhaldandi rigningu í landinu. Um 1000 manns hafa látist síðan flóðin byrjuðu í maí.
-
Eiginmaðurinn ekki ákærður
Saksóknari í Frakklandi segir, að eiginmaður konu, sem grunuð er um að hafa myrt átta nýfædd börn sín, verði ekki ákærður fyrir að leyna morðunum og aðstoða konuna við að fela líkin.
-
Fjárhagslegt neyðarástand í Kalíforníu
Arnold Schwarzenegger, ríkisstjóri í Kaliforníu, hefur lýst yfir fjárhagslegu neyðarástandi í fylkinu. Með yfirlýsingu í þessa veru reynir hann að auka þrýsting á þingmenn á fylkisþinginu að samþykkja fjárlög þar sem tekið er á fjárlagahallanum. Stjórnvöld í Kaliforníu hafa í langan tíma glímt við mikla fjárhagserfiðleika.
-
Ákærð fyrir barnamorð
Dómari ákærði í dag franska konu á fimmtugsaldri fyrir morð á átta nýfæddum börnum en lík barnanna fundust í vikunni í tveimur húsum og garði í frönsku þorpi. Eiginmaður konunnar var ákærður fyrir að aðstoða konuna við að fela líkin.
-
Flutningaflugvél fórst í Alaska
Flutningaflugvél á vegum franska hersins hrapaði í Alaska í morgun. Talið er að fjórir hafi verið um borð í vélinni.
-
Fólk fái að vinna fram yfir 65 ára aldur
Breska ríkisstjórnin hefur tilkynnt að hún áformi að afnema þá reglu að hægt sé að þvinga fólk sem orðið er 65 ára til að hætta að vinna. Stefnt er að því að lög þessa efnis taki gildi í október á næsta ári.
-
Ólögleg innflytjendalög
Jan Brewer ríkisstjóri í Arizona í Bandaríkjunum segist ætla að áfrýja niðurstöðu dómara sem dæmdi hluta af nýrri innflytjendalöggjöf í fylkinu ólöglega. Það var alríkisstjórnin í Washington sem höfðaði málið þar sem hún taldi að einstök fylki í Bandaríkjunum gætu ekki sett ákvæði í lög um innflytjendamál.
|
|