|
Af erlendum síðum |
|
mbl.is - Erlendar fréttir
|
Erlendar fréttir á mbl.is.
|
|
-
Risabarn á ári drekans í Kína
Kínverskur drengur sem fæddist 7,04 kíló er stolt foreldra sinna en þau eru að sama skapi undrandi yfir stærð hans. Kínverskir fjölmiðlar telja að þetta sé stærsta barn sem fæðst hefur í Kína svo vitað sé.
-
Stál í stál í Sýrlandi
Stjórnarandstæðingar í Sýrlandi gefa lítið fyrir yfirlýsingar Bashar al-Assad forseta landsins um að hann sé staðráðinn í því að binda endi á óöldina sem þar ríkir. Assad sagði við utanríkisráðherra Rússland sem heimsótti hann í gær að hann væri tilbúin til samstarfs um áætlanir um stöðugleika.
-
Ráðherrar horfðu á klám og sögðu af sér
Þrír héraðsráðherrar í suðurhluta Indlands sögðu af sér í dag vegna ásakana um að þeir hafi horft á klám í þinghúsinu. Sjónvarpsfréttamenn náðu myndum af þeir að horfa á klám á farsímum sínum á þriðjudag, á meðan aðrir þingmenn rökræddu lagafrumvarp.
-
Enn fólk á lífi í rústum verksmiðju
Fleiri lík hafa fundist í rústum verksmiðju sem hrundi í Lahore í Pakistan í fyrradag og er staðfest tala látinna nú 21. Þarf af eru 16 konur, 4 börn og einn maður, að sögn yfirvalda. Byggingin, sem var þriggja hæða, hrundi að því er talið er í kjölfar gassprengingar.
-
Skrifstofur dýrari í Peking en New York
Skrifstofuhúsnæði í Peking í Kína er nú orðið dýrara en í New York í Bandaríkjunum að það hækkaði um heil 75% í verði á síðasta ári. Eftirspurn eftir húsnæði jókst verulega vegna hraðrar efnahagsuppsveiflu í Kína sem varð til þess að verðið rauk upp.
-
Santorum sigrar í Missouri og Minnesota
Rick Santorum fór með sigur af hólmi í forkosningum Repúblikanaflokksins í Missouri og Minnesota. Galt Mitt Romney afhroð þar. Mjótt er hins vegar á milli þeirra í Colorado, en Santorum stóð betur að vígi þegar úrslit að hluta til lágu fyrir.
-
Vopnahlé með heimsókn páfa
Glæpasamtök í mexíkósku borginni Guanajuato tilkynntu með borðum þar í borg að þau ætluðu að halda friðinn meðan á heimsókn Benedikts páfa stendur í næsta mánuði. Þau vöruðu óvinasamtök sín einnig við því að brjóta gegn vopnahléinu.
-
Argentína leitar til SÞ
Stjórnvöld í Argentínu hyggjast kvarta formlega við Sameinuðu þjóðarnar vegna þess sem þau kalla hervæðingu Breta við Falklandseyjar. Þetta staðfesti Cristina Kirchner, forseti landsins, í gær, þriðjudag. Kvartanir verða sendar öryggisráði og allsherjarþingi SÞ.
-
Enn veldur kuldi vandræðum
Þó svo víða sé ekki eins kalt í Evrópu og verið hefur veldur kuldi - og snjóþungi - enn vandræðum. Þannig voru íbúar nokkurra þorpa í Króatíu innlyksa eftir fimm daga snjókomu. Þurfti Rauði krossinn að koma til bjargar og færa þorpsbúum lyf, mat og eldivið.
-
Vopna ekki andstöðuhópa
Bandarísk stjórnvöld segjast ekki ætla að útvega stjórnarandstöðuhópum í Sýrlandi vopn en sá möguleiki hefur verið nefndur í þeim tilgangi að koma böndum á átökin í landinu.
-
Bræða 2.000 byssur
Um 2.000 byssum var í dag stungið í bræðsluofna á Jamaíku og þær eyðilagðar. Stjórnvöld reyna nú að takmarka byssueign í landinu og koma böndum á glæpi.
-
Berbrjósta konur góð fyrirmynd
Berbrjósta konur eru góð fyrirmynd og mjög heilbrigðar, sagði ritstjóri götublaðsins Sun um blaðsíðu þrjú stúlkuna við Leveson-nefndina sem rannsakar vinnubrögð breskra fjölmiðla í hlerunarmálunum miklu.
-
Sigur fyrir samkynhneigða
Bann við hjónabandi samkynhneigðra í Kaliforníu brýtur gegn stjórnarskrá Bandaríkjanna, segir í niðurstöðu áfrýjunardómstóls. Málið fer nú líklega fyrir hæstarétt.
-
Risastórt hjarta á torginu
Risastóru, bleiku hjarta hefur verið komið fyrir á Times-torgi í New York. Hjartað getur mælt ást vegfarenda.
-
Hvatti þriggja ára son sinn til að reykja
Sænsk móðir hefur verið ákærð fyrir misnotkun og brot gegn áfengislögum fyrir að hafa reynt að fá þriggja ára son sinn til þess að reykja og ekki komið í veg fyrir að honum væri gefinn bjór að drekka. Frá þessu er greint í sænska dagblaðinu Sydsvenskan.
|
|