Íslenskar fréttaveitur
mbl.is - Innlendar fréttir
Innlendar fréttir á mbl.is.

Morgunblaðið á Netinu
  • Þrjár líkamsárásir í Eyjum
    Ölvun, pústrar og erill. Þannig lýsir lögreglan í Vestmannaeyjum nóttinni. Þrír menn eru í haldi eftir skemmtanahald í gærkvöldi og nótt. Mennirnir eru grunaðir um aðild að jafn mörgum líkamsárásum. Þær voru þó allar minniháttar og meiðsli því sömuleiðis.

  • Innleidd án athugasemda
    Tveir fyrrverandi viðskiptaráðherrar, Finnur Ingólfsson og Valgerður Sverrisdóttir, kannast ekki við að neinar athugasemdir hafi borist frá Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) þess efnis að ekki hafi verið staðið rétt að innleiðingu tilskipunar Evrópusambandsins um innistæðutryggingar hér á landi.

  • Umferð hleypt á nýja brú yfir Hvítá í október
    Austara haf nýrrar brúar yfir Hvítá hjá Flúðum verður steypt í ágúst. Þegar steypan hefur fengið sinn tíma til að harðna og lokið hefur verið frágangi við mannvirkið verður hægt að hleypa umferð á.

  • Dumbungur gærdagsins sveipaði Hörpu draumkenndri dulúð
    Bygging Hörpu, nýs tónlistar- og ráðstefnuhúss við höfnina, hefur varla farið framhjá neinum og eru í það minnsta Reykvíkingar orðnir vanir því að berja hana augum.

  • Farið að bera á laxadauða í Norðurá
    Veiðimenn hafa orðið varir við laxadauða í Norðurá í Borgarfirði vegna þurrka. Ástandið er sagt verra en það var sumarið 2007.

  • Verður að forgangsraða þrátt fyrir þrengingar
    Það skýrist endanlega í ágúst. Við höfum almennt miðað við að hann verði um 9%, segir Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra aðspurð um hvenær tíðinda af fyrirhuguðum niðurskurði hjá RÚV sé að vænta.

  • Sólarhringsvakt hjá FÍB um helgina
    Þjónustuvakt FÍB verður allan sólarhringinn um verslunarmannahelgina í síma 5-112-112.

  • Gát og gaman um helgina
    Nóg er um að vera um helgina en verslunarmannahelgin er ein vinsælasta ferðahelgi ársins. Búist er við tugþúsundir leggi leið sína út á landsbyggðina frá höfuðstaðnum en Vestmannaeyjar eru taldar verða vinsælasti áfangastaðurinn.

  • Læknir og lögfræðingur meti örorku
    Héraðsdómur Reykjavíkur kvað upp úrskurð þess efnis að læknir og lögfræðingur skuli fara með mat á varanlegri fjárhagslegri örorku en ekki tveir læknar.

  • Styttir upp þegar líður á daginn
    Austan 5-10 m/s vindur og dálítil rigning til að byrja með, en lægir með morgninum og styttir upp þegar líður á daginn.

  • Seðlabankastjóri bjartsýnn
    Þrátt fyrir að lánshæfismatsfyrirtækið Moody's hafi breytt horfunum fyrir lánshæfismat Íslands úr stöðugum í neikvæðar telur Már Guðmundsson seðlabankastjóri tilefni til bjartsýni. Undirliggjandi þættir í hagkerfinu bendi til að leiðin liggi upp á við.

  • Mjög vond tíðindi
    Þetta eru auðvitað mjög vond tíðindi. Ef við dettum niður um flokk, tala nú ekki um ef við lendum í neðsta flokki, mun það hafa gríðarleg áhrif á kostnað okkar af lántöku. Vaxtaálag okkar mun aukast mjög mikið, segir Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, um neikvæða breytingu á horfum Moody's.

  • Þrjú hjól undir bílnum...
    Ökumaður var tekinn við meintan ölvunarakstur nálægt Laugarvatni í kvöld. Þegar að var komið var hann búinn að missa eitt hjólið undan bílnum, að sögn lögreglunnar á Selfossi.

  • Greiðlega gekk að slökkva
    Greiðlega gekk að ráða niðurlögum elds sem kviknaði við hús við Gagnheiði á Selfossi. Í húsinu er trésmíðaverkstæði og bifreiðaverkstæði. Eldurinn kviknaði í hjólhýsi sem stóð við bifreiðaverkstæðið og náði hann að teygja sig í þakskegg hússins.

  • Talsverð umferð um Öxnadal
    Talsverð umferð var um Öxnadal í kvöld. Umferðin gekk greiðlega og höguðu ökumenn almennt eftir aðstæðum. Ferðafólki er nokkuð farið að fjölga á Akureyri og ástandið þar mjög gott að sögn lögreglunnar. Talsvert var af fólki á ferli í kvöld enda veðrið með eindæmum gott.



Free Joomla Templates By Joomlashack