|
Af erlendum síðum |
|
mbl.is - Innlendar fréttir
|
Innlendar fréttir á mbl.is.
|
|
-
Rannsaka ösku í háloftunum
Gríðarlega umfangsmikil rannsókn á áhrifum eldfjallaösku í háloftunum er að fara af stað í Skotlandi. Verkefnið á að standa í fimm ár og áætlað er að það kosti 430 þúsund pund.
-
Vill fund um vinnubrögð eftirlitsnefndar
Ásbjörn Óttarsson, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í samgöngunefnd hefur farið fram á fund í nefndinni vegna vinnubragða eftirlitsnefndar sveitarfélaga.
-
Lækka launakostnað um 973 milljónir
Björ Zoëga, forstjóri Landspítala, segir að með ýtrasta aðhaldi og útsjónarsemi á öllum sviðum hafi tekist að spara verulegt fé í rekstri Landspítala þannig að snúið hefur verið úr mínus í plús. Þannig hafi tekist að lækka launakostnað um 973 milljónir fyrstu átta mánuði ársins miðað við sama tímabil árið 2009.
-
Beinar skuldir Gaums 6 milljarðar
Vegna ítrekaðra rangfærslna um skuldastöðu Fjárfestingarfélagsins Gaums ehf., í fjölmiðlum undanfarna daga, skal tekið fram að beinar skuldir félagsins eru um 6 milljarðar króna, segir í tilkynningu Kristínar Jóhannesdóttur vegna umræðu um Gaum síðustu daga.
-
Neitar að sitja veislu með Jóhönnu
Jenis av Rana, formaður Miðflokksins í Færeyjum, segist ekki ætla að sitja kvöldverðarboð lögmanns Færeyja fyrir Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra, sem er í heimsókn í Færeyjum, ásamt Jónínu Leósdóttur, eiginkonu sinni
-
Bifreið varð alelda
Bifreið varð alelda eftir að henni var ekið út af á Langholtsvegi við bæinn Efra-Langholt sunnan við Flúðir í dag. Ökumaðurinn, 17 ára piltur sem er nýkominn með bílpróf, slapp með óveruleg meiðsl en hann var fluttur til aðhlynningar á slysadeildina í Fossvogi.
-
Stórtæk bruggun í heimahúsi
Lögreglan á Akureyri gerði í dag tæki til landabruggunar upptæk í einbýlishúsi í bænum en þá var bruggunin í fullum gangi. Um 8 lítrar af landa voru nýkomnir úr eimingu en í húsinu fundust rétt tæpir 300 lítrar af gambra.
-
Mjög há sjávarstaða
Spáð er hárri sjávarstöðu 8. til 11. september. Sjávarhæð á síðdegisflóðinu í Reykjavík 8. og 9. september verður allt að 4,5 m, samkvæmt sjávarfallatöflum sem sjómælingasvið Landhelgisgæslunnar reiknar og gefur út.
-
Makríldeilan í hnút
Jógvan Jespersen, stjórnandi færeysku úthafsveiðisamtakanna (FPO), segir að til að lausn fáist í makríldeilunni þurfi allir málsaðilar að sýna vilja til að þoka málinu áfram. Vikið verður að deilunni á ráðstefnu um úthafsveiði í Færeyjum á morgun en næstu samningalotur fara fram í London í október.
-
Tveir hálsbrotnuðu
Karlmaður og kona hálsbrotnuðu með dags millibili í Skaftárhreppi nú í ágúst. Að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli fór betur en á horfðist í bæði skiptin og fólkið er ekki talið hafa borið varanlegan skaða af.
-
Eðlilegt dýpi í höfninni
Dýpið innan við hafnarmynnið í Landeyjahöfn reyndist eðlilegt við mælingar í dag að undanskildum 30 m breiðum taumi sem teygist vestur úr eystri hafnargarðinum, að því fram kemur í bráðabirgðaniðurstöðum Siglingastofnunar.
-
Mun Bakkafjara umlykja Eyjar?
Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur segir að Bakkafjara muni þegar fram líður stundir teygja sig lengra til suðurs og að lokum umlykja Vestmannaeyjar, á sama hátt og Mýrdalssandur hefur umkringt Hjörleifshöfða.
-
Bankarnir skuldi skýringar
Það þurfa að koma skýringar frá bönkunum í hvaða tilvikum þeir telja eðlilegt að gera svona samninga. Hver eru rök þeirra fyrir því? Er þetta eitthvað sem öll fyrirtæki sem eru í svipaðri aðstöðu eiga rétt á? spyr Sigríður Ingibjörg Ingadóttir þingmaður Samfylkingar um kyrrstöðusamning Gaums.
-
Matarverð lækkar ekki í takt við gengið
Alþýðusamband Íslands segir, að heimilin hafi ekki notið styrkingar krónunnar þrátt fyrir loforð kaupmanna um að svo yrði. Fram kom í fréttum Ríkisútvarpsins, að verð á innfluttri matar- og drykkjarvöru hafi verið nánst óbreytt á þessu ári þó svo að gengisvísitala hafi lækkað umtalsvert.
-
40.000 heimili í járnum
Það liggur ljóst fyrir að það er kominn gríðarlegur verðbólguþrýstingur ef menn styrkja ekki gengið, segir Friðrik O. Friðriksson, framkvæmdastjóri Hagsmunasamtaka heimilanna. Friðrik segir heimilisbókhald um 40.000 heimila í járnum og að ríkið verði að grípa til aðgerða fyrir áramót.
|
|