|
Íslenskar fréttaveitur |
|
Rafbíl á öll heimili á Íslandi. Hver er til í að búa til íslenzkan torfærubíl knúin rafi. 100 Kw í hvert hjóli væri ágætt.
|
Rafbíl á öll heimili á Íslandi. Hver er til í að búa til íslenzkan torfærubíl knúin rafi. 100 Kw í hvert hjóli væri ágætt.
|
-
Skrítinn dómur
Þetta er þetta skrítinn dómur. Fyrir það fyrsta hefur ekki verið sannað að hann hafi neytt lyfja. Í öðru lagi þá gildir þessi dómur frá ca 1. ágúst 2010 til ca 1. ágúst í ár. Hann getur ef, semsagt, hafið keppni aftur stuttu eftir Tour de France í ár. Hvaða ályktun er hægt að draga af þessu? Er þetta einhverskonar kattarþvottur? Afturvirkur dómur þar sem hann hefur verið að keppa meðal annars í Tour de France. Þetta er stórfurðulegt og ekki til þess fallið að auka álit manna á þeim sem fara með stjórnvölinn í hjólreiðum.
-
Hver er ábyrgur?
Ef alvarlegt slys verður í vetur af völdum þessa, hver verður gerður ábyrgur? Ef mannslíf glatast við þessi gatnamót hver verður ábyrgur? Og hvernig ætla menn að bæta þann skaða sem slíkt slys veldur?
-
Undarlegt!
Hvað gerir það athyglisvert að slysum fækkaði á sama tíma og bílum á nagladekkjum fækkaði? Eins og með margt annað í umferðinni þá veldur falskt öryggi mikilli hættu. Það er falskt öryggi í nagladekkjum. Það vita margir. Hvers vegna veit samgöngustjóri Reykjavíkurborgar það ekki? Naglar hjálpa sumum ökumönnum að komast af stað en hjálpa lítið við stjórnun og/eða stöðvun ökutækja. Í raun má alveg segja að þeir sem komast ekki af stað án nagladekkja hafa ekkert út í umferðina að gera á höfuðborgarsvæðinu.
-
Ekkert bil á milli bíla = engin aftanákeyrsla!
Of mikið bil, og aftanákeyrslan verður harðari en ella. Hraðamunurinn verður meiri.
Hvað veldur því að einn ekur aftan á annan? Bilið? Nei. Sá sem er á undan? Já stundum. Sauðsháttur þess sem er á eftir? Já oftast. Hvað er þá til ráða? Vekja sauðinn! Og hvernig verður það gert? Veit ekki. Því verður eiginlega hver og einn að svara sjáflum sér. Varst þú sauðurinn í umferðinni í gær?
-
Slökkva alveg, nema við gatnamót.
Þegar lýsingin hafði „sannað“ gildi sitt kom í ljós að alvarlegum óhöppum fjölgaði. Því miður virðast ökumann verða værukærari á svona vegum þegar þeir eru lýstir. Þess vegna á að slökkvað á þessum ljósum og fjarlægja þá. Vegrið á veginn beggjavegna sem og í miðju.
|
|