Mannaflafrek framkvæmd: Fjölga boga til að læsa hjól við
Það liggur beinast við að sveitarfélögin setja mannafla og svo fé í að setja upp bogar til að læsa reiðhjól við. Bogarnir græna sem Reykjavíkurborg hafa sett upp á fáeinum stöðum nær miðborgina, til dæmis við Skúlatún 2, Borgartúnsmegin eru dæmi um ágætis lausn.
Mér finnst meir en upplagt að tryggingafélög eða lífeyrissjóðir fjármagni þessu. Að vísu sé ég ekki fyrir mér að arður verði af þessu beint. En Alþjóðaheilbrigðismálastofnun býður upp á reiknilíkön til að finna út hversu mikið hið opinbera spari með því að fjölga hjólreiðamönnum. Svo hagkvæmt er þetta án vafa.
Það ætti sömuleiðis að styrkja íbúa til þess að koma sér upp aðstaða fyrir reiðhjólum.
Nóg er búið að styrkja bílaeigendur í egnum árin, og enn er verið að bjóða rafmagnsbíla ókeypis stæði. Mun meiri ástæða er til þess að ýta undir hjólreiðar en notkun rafmagnsbíla.
( Morten )
Loks eitthvað gert með lagningu bíla á gangstétt, þó afar lítið sé
Lími þetta hratt inn frá vef borgarinnar :
http://www.rvk.is/desktopdefault.aspx/tabid-39/351_read-11740/
10.07.2008
Ábendingar gegn bifreiðum á gangstéttum

„Barnavagninn minn á ekki að þurfa að fara út á götu,“ stendur á
glaðlegum miða sem Bílastæðasjóður hefur látið gera. Ætlunin er að
festa miðann á bifreiðar sem loka gangstéttum fyrir foreldrum með
barnavagn og öðrum gangandi vegfarendum.
Ökumenn
hafa undanfarin ár lagt æ fleiri svæði undir bifreiðar sínar í
Reykjavík. Víða má sjá bifreiðum lagt upp á gangstéttar og grasflötum
en það skapar hættu fyrir gangandi vegfarendur sem þurfa oft á tíðum að
fara út á götu til að komast leiðar sinnar. Þessi umgengni bílstjóra
hefur meðal annars skapað hættu fyrir börn.
Stöðuverðir Bílastæðasjóðs og lögregluþjónar geta
lagt stöðubrotsgjald á bifreiðar sem standa ólöglegar en vandinn er það
viðamikill að ákveðið var að gefa út miða með vinsamlegum ábendingum í
nokkrum útgáfum. Einn miðinn segir til um að hér hafi barn ekki komist
leiðar sinnar á gangstéttinni. Annar að bifreið hafi hindrað mann í
hjólastól og á honum stendur: Áttu erfitt með gang? Við líka!
„Það
er alveg bannað að leggja bifreið á gangastétt, bifreið er tálmi fyrir
þá sem vilja ferðast með öðru móti um borgina,“ segir Kolbrún Jónatansdóttir
framkvæmdastjóri Bílastæðasjóðs. „Miðarnir okkar eiga að fræða ökumenn
sem leggja uppi á gangstéttum um afleiðingar gjörða sinna.“
„Við viljum fá fleiri í lið með okkur til að berjast gegn slæmri
umgengni á bílum í borginni. Æ oftar má sjá ófatlaða bílstjóra leggja í
stæði fatlaðra og við þurfum að venja fólk af þessu ósið, “ segir
Kolbrún
Hófleg
dreifing verður á miðum Bílastæðasjóðs og gefst borgarstarfsmönnum
fyrst í stað færi á að nota þá. „Við vonum að bílstjórar taki þessum
ábendingum vel, læri af þessu, geymi miðana og noti þá síðar til að
benda öðrum bílstjórum á betri hegðun,“ segir Kolbrún. Miðarnir eru
ekki límmiðar og hafa umhverfismerkinguna Svanurinn.
Tenglar
Ábending Bílastæðasjóðs: Barnavagninn minn
~~~~~~~~~~~~~~
En af hverju ekki hækka sekti, og dreifa þessum miðum mun viðar ?
Greinilega sést að hjólreiðamenn þó þeir séu með kerru með börnum er ekki ofarlega á lista borgarinnar í þessu sambandi. Einn ábindingin enn um að þeir sem geta og treysta sér til hjóla á götunum..
(Morten)