|
Íslenskar fréttaveitur |
|
Náttúra
|
Náttúra
|
-
Áramót á Las Américas, Tenerife

Áramótin 2011-2012 voru heldur óvenjuleg þetta skiptið þar sem ég
dvaldi með tengdafjölsyldu minni á Tenerife. Eins og á Íslandi þá var
skotið upp flugeldum. En á Tenerife er það ekki almennt almenningur sem
skítur upp flugeldum heldur sjá hótelin um það, allavega á suðvestur
horni eyjarinnar. Á H10 Conquistador
hótelinu þar sem ég gisti hafði flugeldum verið skotið upp á Jóladag í
tveimur tilkomumiklum sýningum. Hótelið var því ekki með
flugeldaskothríð á áramótum. Þess í stað sáu nágrannahótelin um það.
Hljóðnemarnir voru á svölum á 4 hæð og snéru til norðurs. Staðsetningin
var því ekki upp á hið besta til að fanga flugeldana sjálfa, en það sem
einkennir þessa hljóðritun er skemmtilegt bergmál sprengingana frá
eldfjallinu Teide og háum hótelbyggingum. Flugeldasýningin á Las
Américas var þægilega hófstillt miðað við íslenska gauraganginn þar sem
venja er að upplifunin hverfi í ofboðslegum hávaða og þykkum eitruðum
reyk.
Varúð! Þessi upptaka getur skaðað heyrn og hátalara á háum styrk. Sjá og heyra meira á: www.fieldrecording.net Sækja mp3 skrá. Recorder: Sound Devices 744 (24bit/48K)
Mics: Sennheiser ME62 30cm/110°
Pix: Canon 30D Hlusta á Fireworks in Iceland
-
Arlo Guthri og Franz Anton Hoffmeister

Þann 27. nóvember 2011 hélt Sinfóníuhljómsveit áhugamanna
stórskemmtilega tónleika. Á efnisskrá voru Mozart og fleiri
furðufuglar. Tónleikarnir einkenndust af skemmtiatriðum milli og á meðan
flutningi tónverka stóð þar sem Dean Ferrell bassaleikari, Gissur Páll Gissurarson tenor og Oliver Kentish stjórnandi voru í aðalhlutverkum. Hluta af tónleikunum má sjá hér á Youtube.
Tvö lög þar sem Dean Ferrell fer á kostum má heyra hér fyrir neðan. Fyrra lagið er The Pause of Mr. Claus eftir Arlo Guthri og seinn lagið er Menuett eftir Franz Anton Hoffmeister.
Dean er óvenulega fjölhæfur tónlistamaður. Hann leikur á fjölmörg
bassahljóðfæri og er nánast jafnvígur á þau öll. Hann er sérfræðingur í
afbrigðilegum stillingum kontrabassa (scordatura) og standa honum þar
fáir á sporði. Hann hefur sótt fundi Alþjóðlega bassaleikarfélagsins
undanfarin ár og getið sér þar frægð fyrir sérlega frumleg atriði sem
finna má á Youtube. Þar sameinar hann afburða færni sína á hljóðfæri,
leikræna tilburði og afrakstur rannsókna sinna á gamalli tónlist og
hljóðfærum.
Lögin tvo sem hér má heyra eru birt með leyfi Dean og Olivers Sjá og heyra meira á: www.fieldrecording.net Sækja mp3 skrá.
-
Pottormur

Það er vart til það sumarhús sem ekki hefur heitan pott á veröndinni.
Ansi oft er hann samkomustaður barna á daginn og fullorðinna á kvöldinn.
Í júli 2011 dvaldi fjölskyldan í stéttarfélagsbústað nærri Flúðum.
Auðvitað var potturinn mikið notaður. Sonurinn dvaldi þar oft löngum
stundum og var þá tilefni til að lauma hljóðnemum í vatnið. Margir
kannast við hljóðin undir yfirborði vatnsins í svona pottum. En hér
heyrist greinilega þegar fæturnir nuddast við botninn sem og orðaskil
ofan vatnsborðsins. Þá heyrist þegar gengið er um á sólpallinum og
stólar dregnir til. Sjá og heyra meira á: www.fieldrecording.net Sækja mp3 skrá.
-
Friðland í Flóa sumarið 2011 – 1. hluti

Fyrir rúmu ári setti ég á vefinn upptöku af fuglalífinu í friðlandinu í Flóa. Eftir þá ferð var ég harðákveðinn að koma aftur ári síðar.
Dagana yfir sumarsólstöður nú í sumar tjaldaði ég því við Eyrarbakka með allt mitt hafurtask.
Nú kom ég líka með suðminni magnara og hljóðnema. Rétt fyrir miðnætti
lagði ég af stað frá tjaldsvæðinu við Eyrarbakka og hjólaði með tæki og
tól inn á friðlandið. Það var ákveðið að taka upp alla nóttina, helst í 12 tíma, eða á meðan rafhlöður entust.
Veður var gott. Í raun nákvæmlega það sama og árið áður. Hiti u.þ.b.
5-7° C, léttskýjað og breytileg vindátt. Vindstyrkur var frá því að vera
logn allt að 8 m/s sem því miður má stundum heyra í þessari löngu
upptöku. Yfir daginn fór vindstyrkur upp í 15 m/s sem heyra má í
hljóðfærslu frá því í ágúst s.l.
Með nýjum hljóðnemum varð útkoman skárri en árið áður.
Þó enn heyrist suð í tækjum (hvítt suð) þá skiluðu þau ágætum upptökum
af ótrúlega lágværum hljóðum sem vart voru merkjanleg með berum eyrum.
Þá var ekki hjá því komist að hljóðnemarnir tækju upp hljóð frá
bílaumferð sem gátu ekki annað en verið í margra kílómetra fjarlægð, því
ekki sást til allra þeirra sem heyrðust á hljóðritinu þessa nótt. Þá er
suðið í briminu út með suðurströndinni mjög greinilegt. Breytti engu þó
ég reyndi að koma hljóðnemunum í skjól og beina þeim í aðra átt.
Í upptökunni má heyra í mörgum fuglum. Ég ætla að láta hlustendur um að
þekkja þá og koma með nöfn þeirra með því að “Rita ummæli” hér fyrir
neðan. Sjá og heyra meira á: www.fieldrecording.net Sækja mp3 skrá.
-
Í minningu pabba

Faðir minn, Bergur Jónsson (f. 16.4.1934 – d. 28.9.2011), hefur líklega haft meiri áhrif á líf mitt en í fljótu bragði mætti halda. Hann kveikti áhuga minn á ýmsu s.s. skátum, hjólreiðum, ferðalögum, ljósmyndun og mjög mörgu öðru enda stundaði hann félagslíf á mörgum sviðum. Sem rafmagsverkræðingur hafði hann að hluta líka áhrif á að ég lærði rafvirkjun, þó svo hann hafi eflaust ætlast til að ég færi í verkfræði. Bestu minningar mínar um hann voru líklega árin 1968-1980 þegar ég fylgdi honum svo til hvert fótmál á sumrin um hálendi Íslands í tengslum við virkjanir og virkjanaáform. Þessi ár vann pabbi hjá Landsvirkjun sem verkfræðingur og síðar sem deildarverkfræðingur. Hann var því nokkuð fróður um virkjanir og orkuframleiðslu af ýmsu tagi auk þess að þekkja ýmsa afkima á hálendinu. Sumrin á hálendinu höfðu mjög djúpstæð áhrif á mig, svo mjög að í dag tel ég ÓSPILLT víðerni hálendisins stórkotlegustu auðlind sem við Íslendingar eigum. Þessi tími með pabba hefur því mótað skoðanir mínar og líf öðru fremur en annað í mínu lífi. Veturinn 1977-1978 var ég í Skálholtsskóla. Í hverjum mánuði komu ýmsir fyrirlesarar í skólann s.s. fulltrúar allra stjórmálaflokka og aðrir sem höfðu eitthvað fræðandi fram að færa. Ég fékk föður minn til að mæta í skólann og halda fyrirlestur um rafmagn og rafmagnsframleiðslu sem hann og gerði. Hljóðritið sem hér fylgir var tekið upp við það tilefni. Set ég það nú á vefinn í minningu um föður minn sem ég því miður fæ ekki lengur að deila lífinu með. Í þessu hljóðriti heyrist einnig í mönnum eins og Heimi Steinssyni rektor, Arnþóri Karlssyni bónda og kennara og Þorsteini Friðjóni Þorsteinssyni nema og miklum heimspekingi en þeir eru nú allir látnir. Einnig heyrist í Stefáni Erni Hjaltalín nema, sem nú býr í Bandaríkjunum. Eitt það síðasta sem við feðgarnir gerðum saman, tveimur vikum fyrir dauða hans, var að fara á Google Maps og Google Earth til að leita að og skoða þá staði þar sem við áttum heima fyrstu æviár mín í Þýskalandi 1961 til 1966. Þau ár vann pabbi hjá Siemens-Schuckertwerke AG í Erlangen. Eftir flugið og heimsóknir í netheimum skrifaði hann samvikusamlega fyrir mig á hvaða sjúkrahúsi ég fæddist og heimilisföng þeirra þriggja staða þar sem ég hafði búið með foreldrum minum á þessum árum. Eitthvað sem ég hafði ætlað að fá hann til að gera í mörg ár. Meðfylgjandi mynd var tekin í Erlangen í Þýskalandi 17. október 1963, á tveggja ára afmæli mínu, þar sem ég ligg á baki pabba sem greinilega var eitthvað að sýsla við Paragon myndavélina sína. Sjá og heyra meira á: www.fieldrecording.net Sækja mp3 skrá #1 Sækja mp3 skrá #2
|
|