| Opnun hjólreiðavangs – Bike Park í Skálafelli |
|
|
|
|
Á sunnudaginn 8. ágúst verður opnað í Skálafelli fyrsta Bike-Park á Íslandi fyrir fjallahjólreiðar.
Lögð verður alls 3 km löng braut með um 350 m fallhæð. Hægt verður að nota stólalyftuna til að komast upp á fjallstopp og hjóla niður. Á neðri hluta svæðisins verða Dirt-Jump og BMX stökkpallar.
Formleg opnun verður þann 8. ágúst með keppni í BMX og Fjallabruni en nánari dagskrá verður auglýst síðar. Til stendur að hafa svæðið opið um helgar fram á haust á meðan veður leyfir.
Frá því í vor hafa nokkrir athafna- og áhugamenn um fjallahjólreiðar í nánu samstarfi við ÍTR og Reykjavíkurborg unnið að uppbyggingu hjólreiðavangs Bike Park á skíðasvæðinu í Skálafelli að erlendri fyrirmynd.
Sjá frétt hér: http://lhm.is/lhm/frettir/520-opnun-hjolreieavangs-bike-park-i-skalafelli
|