| Íslandsferðir kynna ferð og Fjallakofinn hjólafatnað |
|
|
|
|
Fimmtudaginn 25. munu Íslandsferðir kynna ferð sem farin verður í sumar
og Fjallakofinn kynnir vandaðan hjólafatnað fyrir íslenskt veðurfar.
Viðburður sem enginn hjólreiðamaður ætti að missa af. Áður auglýst
Voffakvöld fellur niður.
Húsnefndin
Klúbburinn er með opið hús fimmtudagskvöld frá kl 20:00. Þar gefst kostur á að kynnast öðru fólki með svipuð áhugamál yfir kaffibolla og tala um heima og geima, eða verða sér út um upplýsingar um athyglisverðar hjólaleiðir, tæknileg málefni eða hvað eina tengt hjólreiðum.
Í klúbbhúsinu er að finna veglegt safn bóka og tímarita sem fjalla um flest það er tengist málefnum hjólreiðamanna auk ferðamennsku og umhverfismála. Þar kemst fólk í viðgerðaraðstöðu, meðlimum að kostnaðarlausu. Því er það gullið tækifæri að yfirfara reiðhjólið og fá tilsögn frá sér reyndara fólki. Það eru nefnilega ekki allir sem kunna að skipta um dekk og bremsupúða eða stilla gíra. Hvað þá teina upp gjarðir eða skipta um olíu í dempara
|