| Kompukvöld |
|
|
|
|
Núna á fimmtudaginn 11. mars kl 20 til 22 verður haldið hið sívinsæla Kompukvöld. Eins og áður eru þessi kvöld ætluð til sölu á hjólabúnaði ýmiskonar. Hefur þessi uppákoma mælst afar vel fyrir og hefur fólk gert góð kaup svo ekki sé meira sagt. vantar þig afturskipti, dempara eða hjólaskó ? Kanski verður heppnin með þér á fimmtudaginn? Kaffi á könnunni og að sjálfsögðu er viðgerðaraðstaðan opin. Ný og betri aðstaða á baðstofuloftinu, sjón er sögu rikari.
Ef þú átt hjóladót eða búnað sem þú notar ekki, endilega komdu með það með þér. Aldrei að vita nema þú finnir kaupanda
Húsnefnd.
Klúbburinn er með opið hús fimmtudagskvöld frá kl 20:00. Þar gefst kostur á að kynnast öðru fólki með svipuð áhugamál yfir kaffibolla og tala um heima og geima, eða verða sér út um upplýsingar um athyglisverðar hjólaleiðir, tæknileg málefni eða hvað eina tengt hjólreiðum.
Í klúbbhúsinu er að finna veglegt safn bóka og tímarita sem fjalla um flest það er tengist málefnum hjólreiðamanna auk ferðamennsku og umhverfismála. Þar kemst fólk í viðgerðaraðstöðu, meðlimum að kostnaðarlausu. Því er það gullið tækifæri að yfirfara reiðhjólið og fá tilsögn frá sér reyndara fólki. Það eru nefnilega ekki allir sem kunna að skipta um dekk og bremsupúða eða stilla gíra. Hvað þá teina upp gjarðir eða skipta um olíu í dempara
|